30/04/2026
Skráningar í maí eru nú í fullum gangi 💛
Hér er hlekkur beint í skráningar ásamt frekari upplýsingum um hópana: https://www.abler.io/shop/ia/spraekirskagamenn
🏋️ Á mánudögum er styrktarþjálfun þar sem við leggjum áherslu á styrktaræfingar til að viðhalda og bæta vöðvastyrk.
🧘Annan hvern þriðjudag er bandvefslosun sem getur m.a. dregið úr verkjum og minnkað vöðvaspennu, aukið hreyfifærni, hreyfanleika og liðleika ásamt því að bæta líkamsstöðu.
🤹 Á miðvikudögum og fimmtudögum er stöðvaþjálfun þar sem við blöndum saman styrk, þoli, jafnvægi og samhæfingaræfingum
Hópar 1, 2 og 3 eru á miðvikudögum - Hópur 4 er á fimmtudögum
Við vekjum þó athygli á að fimmtudagstíminn fyrir hóp 4 þann 14. maí færist yfir á miðvikudag þann 13. maí, vegna uppstigningardags.
Hlökkum til að taka á móti ykkur 💛