Frá toppi til táar

  • Home
  • Frá toppi til táar

Frá toppi til táar Hér deilum við okkar sýn á heilsu, sjálfbærni og umhverfisþáttum
Ekkert sem við skrifum er ætlað sem persónuleg ráðgjöf
🥩🥚🥛🍯🍍☀️🎣₿👨‍👩‍👦‍👦

Oxuð fitusýra er ónýt fitusýra. Þær vill enginn setja inn fyrir sínar varir.Því mettaðari sem fita er, því stöðugri er h...
26/08/2026

Oxuð fitusýra er ónýt fitusýra. Þær vill enginn setja inn fyrir sínar varir.

Því mettaðari sem fita er, því stöðugri er hún. Mettaðar fitur þola því hitun mun betur en ómettaðar fitur.

Það að nota "smoke point" fitugjafa til þess að ákvarða hvaða fita er hentug til hitunar er kolrangur mælikvarði á öryggi fitugjafans.

Kókosolía, smjör og tólg eru allt fitur sem þola hitun mjög vel.

Fljótandi olíur gera það síður, allra síst fræolíur á borð við soja-, sólblóma- og repjuolíu.

Aðgengi að hreinum og næringarþéttum mat er lang mikilvægasta lýðheilsumál þjóðarinnar. Hér á Íslandi höfum við, í dag, ...
19/08/2026

Aðgengi að hreinum og næringarþéttum mat er lang mikilvægasta lýðheilsumál þjóðarinnar.

Hér á Íslandi höfum við, í dag, mjög gott aðgengi að hreinu og næringarþéttu kjöti frá jórturdýrum.

Sýklalyfjanotkun er t.a.m. mun minni hér en almennt viðgengst í Evrópusambandinu.

Sú sérstaða er í hættu ef illa fer í atkvæðagreiðslunni í lok ágúst, sem mun óneitanlega veikja samkeppnisstöðu íslenskra bænda og auka hlutdeild innflutts kjöts í fæðukerfi okkar. Það vill auðvitað enginn heilsumeðvitaður einstaklingur.

Sykur er vissulega langt frá því að vera hollasti matur í heiminum.Líkaminn veit þó nákvæmlega hvað hann á að gera við h...
18/08/2026

Sykur er vissulega langt frá því að vera hollasti matur í heiminum.
Líkaminn veit þó nákvæmlega hvað hann á að gera við hann.

Gervisætuefni eins og aspartam, súkralósi, asulfame K og fleiri eru hinsvegar manngerð efni sem engin lífvera hefur nokkurn tímann þurft að höndla.

Sá sem borðar þessi efni að staðaldri mun finna til í mallanum, það er svo gott sem óhjákvæmilegt.

Prófaðu að taka þau úr mataræði þínu í alfarið og velja náttúrulega sætu, þegar þig langar í eitthvað sætt.
Meltingarvegur þinn mun þakka þér.

Hrátt hunang, döðlur og lífrænt hlynsýróp eru flottir kostir.
Örlítill lífrænn hrásykur er einnig lítið vandamál á sumrin, fyrir þá sem stunda mikla útiveru.
Gervisætuefni eru hinsvegar aldrei af hinu góða, fyrir nokkurn einstakling

*Auðvitað er öll náttúruleg sæta mun hollari fyrir sólarelskandi kónga á sumrin heldur en fyrir díóðuljósselskandi innipúka

Við trúum því að upplýsingar séu valdeflandi, ekki hættulegar.  Því meira sem við vitum um viðfangsefni, því betur erum ...
17/08/2026

Við trúum því að upplýsingar séu valdeflandi, ekki hættulegar. Því meira sem við vitum um viðfangsefni, því betur erum við í stakk búin til þess að taka rökrétta ákvörðun.

Það að heyra að ákveðin fæða eða umhverfisþáttur geti haft áhrif á sjúkdómslíkur á ekki að vera kvíðavaldandi, ef svo er þá er túlkun upplýsinganna órökrétt. Í versta falli leiðum við slíkar upplýsingar hjá okkur og höldum lífinu áfram. Í besta falli skoðum við hlutina betur og tökum ákvörðun útfrá því sem getur þannig haft jákvæð áhrif á líf okkar.

Það er góð og gild ástæða fyrir því að fleiri og fleiri eru farnir að efast um almennar heilsuráðleggingar. Það er ekkert annað en jákvætt að fólk deili sinni skoðun á því hvernig megi hámarka heilsuna. Enginn hefur rétt fyrir sér alltaf, ekki einu sinni yfirvaldið.

Ein lífseigasta mýta nútímanæringarfræði er sú að mikil trefjaneysla sé nauðsynleg fyrir heilbrigðan meltingarveg.Sannle...
16/08/2026

Ein lífseigasta mýta nútímanæringarfræði er sú að mikil trefjaneysla sé nauðsynleg fyrir heilbrigðan meltingarveg.

Sannleikurinn er hinsvegar sá að heilbrigður meltingarvegur er fyrst og fremst afleiðing neyslu á hreinni og auðmeltanlegri fæðu.

Það er engum illt í maganum vegna þess að hann borðar kjöt, fisk eða egg á kostnað trefja.
Þær rannsóknir sem sýna fram á ágóða trefjaneyslu sýna í raun ekkert annað en að óunnin fæða sé betri en unnið rusl. Þær sýna aldrei að hrein fæða, með miklum trefjum sé á nokkurn hátt betri en hrein fæða með litlum trefjum.

Fæðukerfi okkar er stútfullt af efnum sem valda skaða á meltingarvegi.
Karragenan og önnur bindiefni, gervisætuefni, fræolíur, sýklalyf, glyphosate og önnur varnarefni, ógerjað korn og svo mætti lengi telja. Þetta eru þeir þættir sem bumban hatar og allir ættu að sniðganga.

Ef meltingarvegur þinn er ófullkominn gæti sniðgöngun trefja jafnvel verið flott fyrsta skref, líkt og sjá má í þessari ótrúlegu rannsókn https://pmc.ncbi.nlm.nih.gov/articles/PMC3435786/

Address


600

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Frá toppi til táar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

  • Want your business to be the top-listed Health & Beauty Business?

Share