27/01/2026
Heilbrigðisyfirvöld hafa ákveðið að bjóða piltum fæddum 2008–2010 upp á bólusetningu við HPV (Human Papilloma Veirum) sem m.a. geta valdið krabbameini í hálsi og víðar og vörtum á kynfærum. Boðið verður upp á bóluefnið Gardasil 9, einn skammt. Hér má finna frekari upplýsingar um þessar bólusetningar HPV: https://island.is/hpv-human-papilloma-virus
Boðið er uppá þessa blólusetningu í flestum framhaldsskólum, en drengir utan skóla geta haft samband við okkur á heilsugæslunni og fengið bólusetningu.