21/05/2026
Karítas og Halli verða hjá okkur í byrjun júlí:) Þau, ásamt fleirum, eiga og reka stofuna í Reykjavík. Best er að bóka hjá þeim beint í gegnum instagram eða viðeigandi netfang. Einstakt tækifæri til að bóka lífleg og litrík verk hjá þessu tvíeyki✨
Karítas: [email protected]
Halli: [email protected]
Karítas eða KaritasArt hefur starfað sem húðflúrari í 5 ár og rekur sitt eigið studio í Reykjavík, Feyrún Tattoo. Hún er lærður myndskreytir (illustration) og er sterkur teiknari. Stílarnir sem hún hefur dálæti að eru litrík illustration verk, fineline, anime/cartoon og black work.
Halli eða Hulinn.tattoo hefur flúrað í 4 ár og starfar í Reykjavík á Feyrún Tattoo. Hann er lærður hreyfihönnuður (animator) og er sterkur teiknari. Stílar sem hann elskar að gera eru old school, Japanese, cartoon/anime og illustrative.