05/09/2026
💧✨ Slökun í vatni – fyrsti tími vetrarins ✨💧
Nú hefjum við veturinn aftur með kyrrð, hlýju og notalegri stund í vatninu.
Í Slökun í vatni færðu tækifæri til að staldra við, sleppa takinu á amstri dagsins og leyfa hlýju vatninu að bera þig. Saman slökum við á og njótum þeirrar einstöku tilfinningar sem fylgir því að svífa nánast þyngdarlaus í vatninu. 💙
Ég skapa rólegt og notalegt andrúmsloft með hlýju vatni, slakandi tónlist og öllu því sem þarf til að búa til góða stund fyrir líkama og huga.
Þátttakendur nefna meðal annars djúpa hvíld, minni verki, betri svefn og aukna innri ró sem ástæður þess að þeir koma aftur og aftur.
✨ Slökun í vatni er opin öllum
💧 Lánssett í boði hjá Aqua Jóga fyrir þau sem eiga ekki eigin búnað
💧 Stakur tími: 1.500 kr.
💧 Engin skráning – bara mæta
📅 Laugardaginn 12. september kl. 13:30
📍 Sundlaug Akurskóla, Innri-Njarðvík
Komdu eins og þú ert – leyfðu vatninu að bera þig og gefðu þér stund til að vera. 💙
Verið hjartanlega velkomin í Slökun í vatni með Aqua Jóga.