Saga Biotherm:
Í Pyreneean fjöllunum eru lindir sem voru notaðar til heilsubaða til forna fyrir græðandi áhrif sín. Þessar lindir höfðu fallið í gleymsku en hundur fann hana aftur
Hundurinn þjáðist af exemi, húsbóndi hans tók eftir að hann hvarf daglega í nokkra tíma og kom til baka út ataður í leir.Hundurinn var eltur og í ljós kom að hann baðaði sig í leir við heita lind. Vatnið innihélt súlfur
og önnur leyndardómsfull efni sem voru nefnd Thermal Plankton, sem er sérstaða merkisins í dag. En þarna var búin til lítil laug sem fólk kom og baðaði sig í til lækninga. Frægð lindarinnar spurðist út og seinna var búið til SPA hótel þarna
Vísindamenn fóru að hafa áhuga á vatninu. Thermal Plankton var efnagreint á síðustu öld. Það inniheldur ótrúlega mörg mikilvæg stein- og snefilefni. Síðan var það ekki fyrr en árið 1950 sem kona að nafni Jeanine Marissal lyfjafræðingur ákvað að gefa kost á að nota þetta efni í snyrtivörum. Hún vildi gefa merkinu nafn sem einkenndi sérkenni merkisins: Bio – líf og Therm sem stendur fyrir Thermal Plankton
Biotherm = Uppspretta lífs fyrir húðina
*Flestar vörur Biotherm innihalda jafngildi 5000 L af SPA vatni í einni og sömu krukkunni
*Varan er stútfull af stein- og snefilefnum sem hafa mjög græðandi áhrif