24/08/2026
Komdu og upplifðu Bátadaginn 2026!
Langar þig að prófa siglingu í öruggu og aðgengilegu umhverfi? Þá er Bátadagurinn við Elliðavatn rétti staðurinn fyrir þig.
Fatlað fólk, fjölskyldur, vinir og aðstandendur eru hjartanlega velkomin á einstaka fjölskylduhátíð þar sem allir fá tækifæri til að njóta útivistar, samveru og siglinga með aðstoð reyndra leiðbeinenda.
✅ Frítt í bátana
✅ Aðgengileg og vinaleg stemning
✅ Skemmtileg upplifun fyrir alla fjölskylduna
✅ Veitingar á vægu verði
Laugardaginn 29. ágúst 2026 kl. 13:00–17:00
Krika, sumarbústaða- og útivistarsvæði Sjálfsbjargar við Elliðavatn.
Allir eiga rétt á að njóta ævintýra á vatninu.