Ljóshof

Call Website Contact the business

Ljóshof Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Ljóshof, Health & Wellness Website, Máshólar 1, Reykjavík.

Velkomin á síðu Ljóshofs. Þjónusta sem Ljóshof býður upp á er:
💙Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð (Cranio)
💙Heilun - orkuvinna með ljósverum og skilaboð
💙Hugleiðsla með Lilju á netinu
💙Hugleiðsla með Lilju fyrir byrjendur

15/10/2026

Mikið og margt að gerast hjá mér. Hlakka til að kynna það betur fyrir ykkur á næstunni. Heimasíðan er Ljoshof.is

13/10/2026

Reiði getur skapað mikla spennu í líkamanum. Stundum situr hún í okkur dögum saman og við eigum erfitt með að róa okkur niður og finna jafnvægi.
Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð (Cranio) er mild meðferð þar sem unnið er með miðtaugakerfið með það að markmiði að styðja við slökun, draga ú spennu og hjálpa þér að finna ró og jafnvægi.
Bókaðu tíma inn á
Noona.is/ljoshof eða inn á
Ljoshof.is

06/10/2026

Þú þarft ekki alltaf að þegja til að halda friðinn. Ertu hætt að reyna að segja skoðanir þínar því þér finnst engin vera að hlusta á þig? Kannski hefur þú vanist því að halda aftur af þér, segja ekki það sem þér finnst eða setja þínar eigin þarfir til hliðar. Í Cranio meðferð er m.a verið að skoða hvort það er eitthvað sem er að hindra flæðið. Ef þú finnur að þú vilt losa um og gefa sjálfri þér meira rými, bókaðu tíma hjá mér inn á Noona.is/ljoshof

Cranio meðferð hjá Ljóshofi💫Síðustu fjóra daga hef ég verið aðstoðarkennari hjá Upledger Ísland í námi í höfuðbeina- og ...
05/10/2026

Cranio meðferð hjá Ljóshofi💫
Síðustu fjóra daga hef ég verið aðstoðarkennari hjá Upledger Ísland í námi í höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð. Þetta var þriðja námskeiðið af fimm í þeirra vegferð að verða útskrifaðir meðferðaraðilar.

Ég tók sjálf þetta námskeið fyrir um tveimur árum og er svo þakklát fyrir að fá nú tækifæri til að koma aftur – að þessu sinni hinum megin við borðið, sem aðstoðarkennari.

Það er svo gefandi að fá að vera til staðar fyrir nemendurna, fylgjast með þeim læra og vaxa í þekkingu sinni. Um leið fæ ég sjálf tækifæri til að rifja upp námsefni sem ég hef áður lært og upplifað. Það er merkilegt hvað maður getur alltaf séð eitthvað nýtt þegar maður kemur aftur að sama efninu.

Og svo er það félagsskapurinn.
Fjórir langir dagar í dásamlegum félagsskap, með fólki sem deilir sama áhuga og ástríðu.
Og svo er það Cranio-vinkona, góð samtöl og hlátur á leiðinni til Selfoss og heim.
Já… er ekki lífið dásamlegt? ❤️

Og svo er spurningin: Hvað getur Cranio meðferð gert fyrir þig?

Þegar þú leggst á bekkinn fær líkaminn tækifæri til að hægja á og þú færð rými til að hvílast.
Eins og einn skjólstæðingur sagði eftir Cranio-meðferð hjá mér:

„Eftir tvær meðferðir g*t ég hætt að nota verkjalyf! Mæli 100% með til að losa um spennu og verki í líkama.“

Svona orð eru mér einstaklega dýrmæt. ❤️

Auðvitað upplifir hver og einn meðferðina á sinn hátt og engar tvær meðferðir eru eins. Það sem mér finnst svo fallegt við Cranio er hvað líkaminn getur fengið rými til að slaka á, róast og finna aftur meira jafnvægi.
Ef þig langar að prófa og gefa þér þessa stund, þá er hægt að bóka tíma hjá mér í Ljóshofi.

Bókaðu tíma: Noona.is/ljoshof

30/09/2026

Sorg er að kveðja eitthvað gamalt, eitthvað sem var áður, en verður ekki lengur. Ég sé sorg þannig að þetta eru tilfinningar sem ég þarf að ganga í gegnum sjálf. Ég get ekki rétt einhverjum sorgina og beðið um að laga fyrir mig.
En ég get fengið stuðning á meðan ég geng í gegnum hana. Það getur verið að fara í Cranio meðferð eða heilun. Því í meðferð finn ég aftur neistann innra með mér, sem hjálpar mér að létta á sorginni og tengjast sjálfri mér á ný🙏
Stundum þurfum við bara öruggt rými til að stoppa, anda og hlusta á okkur sjálf. Ef þú finnur að þú þarft slíkt rými, bókaðu tíma hjá mér♥️
Ljoshof.is

26/09/2026

Valdið er þitt
Aðrir segja þér ekki hvernig þú átt að fara í gengum daginn. En spyrðu þig: Ertu í kærleikanum eða óttanum? Það gleymist svo auðveldlega að vera í kærleikanum, sérstaklega í krefjandi samfélagi þar sem mikið er um að vera og margt sem kallar á athygli okkar.
Jafnvægið kemur ekki alltaf af sjálfu sér.
Stundum þurfum við að staldra við, hlusta inn á við og gefa okkur rými.

Ef þig vantar stuðning á þeirri leið getur þú pantað tíma hjá mér í heilun eða höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð (CranioSacral).

Þú þarft ekki alltaf að finna leiðina ein/n.❤️
https://noona.is/ljoshof

Frá öllu sem bíður þín - og til þín❤️Í meðferð hjá mér færðu rými til að hæga á, losa um spennu og álag og gefa líkama o...
25/09/2026

Frá öllu sem bíður þín - og til þín❤️

Í meðferð hjá mér færðu rými til að hæga á, losa um spennu og álag og gefa líkama og taugakerfi tækifæri til að hvílast.

Að vera í þinni eigin orku er nefnilega mikilvægt. Jafn mikilvægt og að draga andann.

Þegar þú hægir á og beinir athyglinni inn á við verður auðveldara að finna hvað þú þarft – og hlusta á innsæið.

Hvenær leið þér síðast eins og þú værir alveg í þinni eigin orku og vissir allt upp á 10?

Andaðu djúpt inn og út.
Bókaðu tíma hjá Ljóshofi.
Noona.is/ljoshof

Viltu sofa betur? Í meðferð hjá mér gefst þér rými til að hægja á, slaka á og tengjast þér betur.Margir lýsa því að þeir...
24/09/2026

Viltu sofa betur?

Í meðferð hjá mér gefst þér rými til að hægja á, slaka á og tengjast þér betur.

Margir lýsa því að þeir finni fyrir meiri ró eftir meðferð og að svefninn verði betri.

Stundum berum við með okkur meira en við gerum okkur grein fyrir. Gamlar upplifanir, spennu og álag sem geta sest að í líkamanum og verið erfitt að sleppa.

Hvort sem það er Cranio-meðferð eða heilun með skilaboðum gefst þér tækifæri til að staldra við, anda djúpt og hlusta inn á við.

Gefðu þér tíma til að hægja á. ❤️
Bókaðu tíma hjá Ljóshofi í Noona.
noona.is/ljoshof.is

🍂 Í dag er haustjafndægur🍂Dagur og nótt eru í jafnvægi og náttúran sjálf er farin að hægja á. Kannski er það góð áminnin...
23/09/2026

🍂 Í dag er haustjafndægur🍂
Dagur og nótt eru í jafnvægi og náttúran sjálf er farin að hægja á. Kannski er það góð áminning fyrir okkur að gera það líka.
Að fara út í náttúruna, anda djúpt, finna jörðina undir fótunum og leyfa huganum að róast. Þegar við hægjum á og gefum taugakerfinu rými til að slaka á verður oft auðveldara að tengjast okkur sjálfum og hlusta á innsæið.

Þetta er hluti af því sem ég hef svo mikla trú á í Ljóshofi – að gefa okkur sjálfum rými til að staldra við, róa hugann og hlusta inn á við.

Kannski er gott að spyrja sig:

Hverju þarf ég að sleppa?

Hvað vil ég veita meiri athygli?

Og hvað er innsæið mitt að segja mér?

Farðu út í dag. Andaðu. Finndu náttúruna og vertu aðeins í augnablikinu. 🍂

Viltu vita öll svörin? Hvað ef fleiri svör búa innra með þér en þú heldur?Hugleiðsla getur hjálpað þér að hægja á, hlust...
21/09/2026

Viltu vita öll svörin?

Hvað ef fleiri svör búa innra með þér en þú heldur?

Hugleiðsla getur hjálpað þér að hægja á, hlusta inn á við og tengjast innsæinu þínu.

Hugleiðsla fyrir byrjendur hefst þriðjudaginn 22. september.

Nánari upplýsingar um námskeið eru inn á ljoshof.is

Skráðu með því að senda póst á [email protected]

Address

Máshólar 1
Reykjavík
111

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ljóshof posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Ljóshof:

Shortcuts

Share