08/09/2022
Jógadans, chakradans er líka gott verkfæri til að losa um tilfinningar! Hafðu samband ef þú vilt koma í prufutíma.
Skilaboð samfélagsins eru oft að við eigum bara að hætta þessu væli.
Girða okkur í brók.
Ekki svekkja sig á smáatriðum.
Vera ALLTAF glöð.
Þegar við eigum alltaf að vera eins og Pollýanna á amfetamíni, valhoppandi í hörfatnaði með hvíta hvolpa í sænskum skerjagarði, þá missum við tengsl við innra tilfinningalífið, og hvernig það birtist í líkamlegum einkennum og hugsunum.
Við festumst í þeirri ranghugmynd að það sé veikleiki að vera súr, sár, svekktur, pirraður, ósáttur, reiður og dapur.
Við eigum að forðast þessa upplifun eins og loga vítis.
Þar af leiðandi kunnum ekki að mæta neikvæðum tilfinningum á réttan og uppbyggilegan hátt.
Margir nota óheilbrigð bjargráð á borð við sælgæti, sjoppingtúra, Smirnoff og sígarettu.
Þessir hlutirt verða vinur og hækja í neikvæðum tilfinningum.
Þeir dreifa huganum frá óþgæilegu tilfinningunum um stundarsakir og við slökkvum á heilanum.
Hlutverk matar í neikvæðum tilfinningum er margþætt.
Melting færir okkur á núlleinni úr streitukerfinu yfir í rólega parasympatíska kerfið.
Matur að velkjast um í mallakút róar niður taugakerfið og sú spenna sem við finnum ólga innra með okkur í pirringi, frústrasjón og reiði, dettur í dúnalogn á meðan.
Sykur, salt og fita, nikótín og alkóhól losa út gleðihormónin dópamín og serótónín á núlleinni og þetta veit skrokkurinn. Þess vegna öskrar hann á Hómblest, Maarud og lakkrísreimar þegar ergelsið streymir um æðarnar.
En matur, sjoppiing, sjúss og rettur sem bjargráð í tilfinningaróti býr til fleiri vandamál en hann leysir.
Því ofan á pirring, svekkelsi, frústrasjón bætist samviskubit, sektarkennd, svekkt sjálfsmynd.
Eins og að pissa í skóinn sinn... rosa heitt og notalegt í örfáar sekúndur en verður síðan ískalt og nístandi.
Ef við lærum frá blautu barnsbeini að upplifa allar tilfinningar, bæði góðar og slæmar, þá áttum við okkur á áhrifaríkum aðferðum til að tækla þær og mæta á réttan hátt.
Tilfinningar eru upplýsingar sem segja okkur hvað við þurfum á þeirri stundu.
Og við búum til verkfærakassa um hvað virkar fyrir okkur.
Þreyta þýðir hvíld.
Einmana þýðir hringja í Gunnu vinkonu.
Streita þýðir að segja oftar NEI.
Bugun þýðir að setja mig meira í forgang.
Reiði þýðir göngutúr.
Söknuður þýðir að hlusta á tónlist.
Óöryggi þýðir að skrifa niður styrkleika mína.
Kvíði þýðir að veita umhverfinu athygli.
Í staðinn fyrir að sópa þeim undir teppið þá sitjum við í þeim og áttum okkur á að þær eru eins og öldur á hafi.
Koma og fara. Upp og niður.
Leyfðu þér að stíga allar öldurnar án þess að fá samviskubit yfir að vera fúll á móti inn á milli.
Að vera urlandi hamingjusamur prumpandi glimmeri alla daga er tálsýn.
Gleði er bara ein af mörgum bárum sem mæta okkur á ólgusjó mannlegs eðlis.
Byrjum að finna tilfinningarnar í staðinn fyrir að forðast.
Normalíserum að það er í lagi að vera stundum súr og svekktur.