11/09/2026
Takk fyrir þátttökuna !💛🥰🙏
Hér koma spilin ykkar 💛
1✨
Jarðtengdu þig💛
Samkennd og næmni. Tengstu náttúrunni.
Þú ert kölluð/kallaður til að jarðtengja þig. Það hjálpar þér að halda jafnvægi og hafa næga orku. Þegar við erum ekki jarðtengd er auðvelt að gleypa í sig orku annarra og halda að hún sé okkar eigin. Þá geta mörkin orðið óljós, því við erum að draga í okkur það sem er í kringum okkur í stað þess að greina hvað tilheyrir okkur sjálfum..
Það er mikilvægt að næra orkuna þína og finna jafnvægi með því að jarðtengjast. Sumir fá orku sína utan frá, aðrir innan frá – hugsaðu um hvað hentar þér og gefðu þér tíma til að fylla lindina þína. Næmni er gjöf, en hún þarf að vera í jafnvægi til að þú njótir hennar.
Það er auðvelt að týnast í allri orkunnni sem streymir um heiminn í dag. Fljótlegasta og áhrifaríkasta leiðin til að hreinsa út er að tengjast móður jörð.
Það eru margar leiðir til að jarðtengja sig: vera úti í náttúrunni, leggja lófana á tré, ganga berfætt/ur á grasinu eða einfaldlega setjast og finna jörðina styðja þig.
Gerðu eitthvað sem hjálpar þér að jarðtengjast og tengjast jörðinni.
2 ✨ Vakning💛
Orkubreytingar. Nýtt líf. Jafnvægi.
Þú ert að ganga í gegnum tímabil vakningar. Breytingar eiga sér stað innra með þér og á mörgum sviðum lífsins. Þú ert að muna það sem býr innra með þér og smám saman skilurðu betur hver þú ert og hvers vegna þú ert hér.
Þú gætir munað fyrri líf, séð tengslin í kringum þig eða fundið orkuna rísa í líkamanum.
Það sem skiptir mestu núna er að halda þér jarðtengdri/jarðtengdum og ekki ofhugsa. Deildu reynslunni með fólki sem skilur þig, skrifaðu hjá þér hugsanir og fylgstu með draumum þínum. Þú ert að muna og sálargjafir þínar eru að vakna.
Í þessari umbreytingu getur þú verið kölluð/kallaður til að leggja kraft þinn í að þjóna öðrum. Nýjar hugmyndir, innsýn, bækur eða sköpun geta komið í gegnum þig – vertu opin/n til að taka á móti. Ef þú dregur þetta spil getur það verið merki um að þú sért hér til að færa eitthvað nýtt inn í heiminn, eða að það sé kominn tími til að breyta til svo lífið þitt styðji betur þá þjónustu sem þú ert kölluð/kallaður til. Ekki hugsa of mikið – bara opnaðu þig og fylgdu flæðinu.
3✨
Leikur💛
Hafðu gaman. Fagnaðu. Ekki taka hlutunum of alvarlega.
Lífið má líka vera létt og skemmtilegt. Andinn þinn þráir meiri gleði og léttleika. Því meira sem þú leyfir þér að leika, því meira færðu innblástur og orku. Gefðu þér tíma til að gera eitthvað bara af því að það gleður þig – án þess að hugsa um útkomuna.
Þú ert kölluð/kallaður til að hvíla þig og leika. Gerðu eitthvað sem fær þig til að hlæja – það er besta lyfið. Hittu einhvern sem þú getur verið algerlega afslöppuð/afslappaður með, eða leyfðu innra barninu þínu að koma fram og njóta. Því meira sem þú slekkur á hugsunum, því meira rými skapast fyrir andann til að leiða þig.
Finndu tíma fyrir gleði. Skipuleggðu hana ef þarf. Gerðu meira af því sem kveikir gleði innra með þér – bara af því að það fær þig til að brosa. Þegar þú fylgir því sem lætur þig skína, lýsirðu upp heiminn í leiðinni – án þess að reyna.
Ef þú hefur verið að vinna mikið undanfarið er nú kominn tími til að staldra við og fagna öllu sem þú hefur áorkað. Ekki flýta þér strax í næsta verkefni – leyfðu þér að njóta augnabliksins, halda veislu, fara í frí eða gera eitthvað sem fær hjartað til að hoppa af gleði.
Leyfðu þér meiri gleði. Leiktu þér meira. Fagnaðu því sem þú hefur áorkað.
Yndislega helgi til ykkar 💛🙏
Kærleikskveðja ✨
Svanhvít