Ásta Aldan

Ásta Aldan Ásta Soffía Aldan
heilun · jóga nidra · sjamanískar ferðir · markþjálfun · sánugusur

Elsku ljós 🌞 það eru kominn smá biðlisti hjá mér, svo ég loka fyrir pantanir í bili. Innilega þakklát fyrir ykkur öll 🕊️...
28/04/2026

Elsku ljós 🌞 það eru kominn smá biðlisti hjá mér, svo ég loka fyrir pantanir í bili. Innilega þakklát fyrir ykkur öll 🕊️

Kæru vinir 🐞
Ég er farin að taka við pöntunum að sækja dýravætt - spirit animal.

Dýravættir eru hluti af fornum shamanískum hefðum þar sem talið er að hver manneskja eigi eitt eða fleiri andleg fylgdardýr. Þessi dýr birtast sem verndarar, leiðbeinendur eða speglar á eigin styrkleika og áskoranir. Þau geta gefið innsýn, stuðning og hjálpað okkur að tengjast náttúrunni á dýpri hátt.

Það er líka mikilvægt að hafa í huga að við getum átt fleiri en eitt fylgdardýr, sum fylgja okkur alla ævi á meðan önnur koma og fara eftir því hvar við erum stödd með verkefni lífsins.

Þetta virkar þannig að ég tengi ég mig við orkuna þína og skrifa niður hvaða dýravættir stíga fram fyrir þig og hvaða skilaboð þeir bera til þín. Skilaboðin með dýrinu færðu svo skriflega frá mér á messenger. Hvert ferðalag kostar 2.500 kr.

Ef þú hefur áhuga eða vilt vita meira, sendu mér skilaboð 💌

Hlakka til að ferðast fyrir þig 🐞

Hæ kæru félagar 😊Það urðu þau leiðu mistök hjá Hópkaup.is að ekki var hægt að kaupa heilun hjá mér um tíma. Nú hefur það...
22/04/2026

Hæ kæru félagar 😊

Það urðu þau leiðu mistök hjá Hópkaup.is að ekki var hægt að kaupa heilun hjá mér um tíma. Nú hefur það verið lagað og enn er hægt að versla tilboðið.

Takk fyrir þolinmæðina og hlakka til að taka á móti ykkur ✨

Tími í Heilun (60 mín) - Hópkaup.is - Í krafti fjöldans

🔥 Ég verð gesta-gusari í Suðurbæjarlaug á miðvikudaginn! 🔥Tímar:🕕 Kl. 18:30  🕗 Kl. 19:45Skráning fer fram annað hvort hj...
20/04/2026

🔥 Ég verð gesta-gusari í Suðurbæjarlaug á miðvikudaginn! 🔥

Tímar:
🕕 Kl. 18:30
🕗 Kl. 19:45

Skráning fer fram annað hvort hjá mér eða hjá Sauna Zen Iceland.

Hlakka til að sjá ykkur í góðum hita og stemningu! 🌿♨️

14/04/2026

Bíð uppá reiki heilunar tíma í Heilsumiðstöð Reykjavíkur endilega nýtið ykkur tilboðið sem er í gangi á Hópkaup.is

Langar þig að vita hvert spirit dýrið þitt er? Ég ætla að opna fyrir pantanir á ferðalögum til að sækja og finna spirit ...
13/04/2026

Langar þig að vita hvert spirit dýrið þitt er?

Ég ætla að opna fyrir pantanir á ferðalögum til að sækja og finna spirit dýr fyrir þig, opið verður fyrir pantanir til miðvikudags.

Ferlið er svona:
🥁 Ég set ásetning með þínu nafni og fer í trommuferðalag
🌿 Ég skrái það sem birtist – dýrið, skilaboð, tákn og stemningu
✍🏼 Þú færð síðan samantekt senda í einkaskilaboðum á Messenger

Þetta er unnið af virðingu fyrir þeim sjamanísku hefðum sem ég hef menntað mig í. Þetta er ekki spádómur heldur táknræn og andleg speglun sem getur gefið innsýn, styrk og dýpri tengingu við náttúruna.

Ef þú finnur að þetta kallar á þig, sendu mér skilaboð á messenger.
Hvert ferðalag kostar 2.500 kr.

🐰Hey Kanína! komdu í partí 🐰Nú eru nýliðnir páskar og á þessum tíma árs sjáum við oft kanínuna birtast í kringum hátíðin...
08/04/2026

🐰Hey Kanína! komdu í partí 🐰

Nú eru nýliðnir páskar og á þessum tíma árs sjáum við oft kanínuna birtast í kringum hátíðina en tengingin milli kanínunnar og vorsins á sér í raun langa sögu í evrópskum siðum.

Í mið Evrópu voru haldnar vorhátíðir þegar vetri lauk, dagurinn lengdist og dýr fóru að eignast afkvæmi. Þessi árstíð tengdist frjósemi, nýju lífi og endurnýjun náttúrunnar, því voru egg og kanínur náttúruleg tákn þessa tímabils. Dagsetning páska er líka tengd þessum náttúrutakti, því páskar eru haldnir fyrsta sunnudag eftir fyrsta fullt tungl eftir vorjafndægur.

Í Þýskalandi á 17. öld varð til sagan um páskahérann (Osterhase), sem faldi egg fyrir börn og „kom í heimsókn“ um páskana. Þýskir innflytjendur fluttu síðan þessa hefð til Norður-Ameríku á 18. öld, þar sem hún þróaðist í þá páskahefð sem margir þekkja í dag. Páskahérinn s.s. varð að Easter bunny.

Í mörgum náttúrutrúarhefðum táknar kanínan mikla lífsorku, frjósemi, endurnýjun og vorið sjálft. Ef við skoðum hvernig kanínan hegðar sér í náttúrunni sjáum við líka hvers vegna: hún er snögg, vakandi og bregst hratt við hættu. Hún getur hlaupið allt að 40–70 km/klst og notar jafnvel afturfæturna til að slá í jörðina og vara aðrar kanínur við hættu. Þetta gerir hana að afar árangursríku flóttadýri.

Kanínan hefur líka mjög mikla æxlunargetu. Hún getur orðið kynþroska á 3–6 mánuðum, gengur með í aðeins um 30 daga og getur eignast 3–8 unga í goti, þetta getur hún endurtekið 4–7 sinnum á ári. Það þýðir að ein kanína getur eignast allt að 20–40 unga á ári við góðar aðstæður, stundum jafnvel fleiri. Þess vegna hefur kanínan, líkt og kötturinn, lengi verið tákn frjósemi og lífskrafts. En kettir og kanínur hafa þá óvenjulegu æxlunargetu að egglos á sér stað við pörun.

Í dag er kanínan einnig eitt algengasta tákndýrið í vörumerkjahönnun. Fjölmörg heimsþekkt vörumerki nota hana, enda sameinar hún hraða, orku, mýkt og leikgleði í einni mynd sem fólk þekkir strax. Þetta eru vörumerki eins og Duracell, Pl***oy og Nesqiuk. Athyglisvert er að kanínan getur haft tvöfalda merkingu sem gerir hana að sérstaklega öflugu vörumerki. Oft er leikið með sakleysislegt útlit kanínunnar og aðra eiginleika hennar. Skemmtilega útgáfu af þessu má sjá í teiknimyndinni Secret Life of Pets, en þar er kanínan Snowball krúttlegur en geðvondur leiðtogi gæludýranna.

Sem svokallað „spirit dýr“ er kanínan líka oft túlkuð sem tákn orku og endurnýjunar, leikgleði, næmni og lukku og stundum minnir hún okkur á að vera opin fyrir jákvæðum og óvæntum tækifærum í lífinu.

Kanínan birtist líka á áhugaverðan hátt í sögunni Alice in Wonderland, þar sem hvíta kanínan leiðir Alice inn í kanínuholuna og þannig hefst sagan. Í táknrænum skilningi minnir kanínan okkur þannig á að stundum opnast nýjar dyr að lífsins lukku þegar við þorum að fylgja eðlisávísuninni, vera pínu hvatvís og stíga fyrsta skrefið inn í hið óvænta.

Fallegt að hugsa til þess að lítið dýr sem við tengjum oft við páskana ber með sér svona djúpa sögu um vor, endurnýjun og lífsorku 🌱🐇✨

04/04/2026

🌷 PÁSKALEIKUR 🌷

Í tilefni þess að ég er komin í skemmtilegt samstarf við Hópkaup og bý nú upp á Reiki heilun á sérstöku tilboði, langar mig að gleðja ykkur með litlum páskaleik 🐣✨

Ég ætla að gefa einn Reiki heilunartíma að gjöf 💛

Það sem þú þarft að gera til að taka þátt:
✔️ Deila þessari færslu
✔️ Tagga vin eða vinkonu í komment hér að neðan

Ég dreg út einn heppinn þátttakanda næsta miðvikudag.

Gangi ykkur vel og gleðilega páska! 💫

Kæru ljós ✨ Nú er ég með tilboð á reiki heilun til sölu í gegnum Hópkaup. Endilega kíkið á það, heilun er líka falleg su...
01/04/2026

Kæru ljós ✨

Nú er ég með tilboð á reiki heilun til sölu í gegnum Hópkaup. Endilega kíkið á það, heilun er líka falleg sumar- eða afmælisgjöf fyrir þann sem þarf á að halda. Set hlekk á Hópkaup í komment.

Njótið páska 🕊️

✨ Í dag opna ég aftur fyrir pantanir til að sækja spirit dýr ✨Ef þú ert forvitin um hvaða dýr fylgir þér og hvaða skilab...
31/03/2026

✨ Í dag opna ég aftur fyrir pantanir til að sækja spirit dýr ✨

Ef þú ert forvitin um hvaða dýr fylgir þér og hvaða skilaboð það ber með sér, sendu mér endilega skilaboð á Messenger 💫

🕷️Ó kónguló, ó kónguló, vísaðu mér á berjamó.🕷️Í hinum vestræna heimi erum við oft lítt hrifin af kóngulóm. Í hefðum fru...
25/03/2026

🕷️Ó kónguló, ó kónguló, vísaðu mér á berjamó.🕷️

Í hinum vestræna heimi erum við oft lítt hrifin af kóngulóm. Í hefðum frumbyggja Norður-Ameríku gegnir hún hins vegar mikilvægu hlutverki og nýtur mikillar virðingar. Hún tengist sköpun, tengslum allra hluta, þolinmæði og því að „vefa“ eigin örlög. Hún er það sem mig langar að kalla sannkallaðan master manifester, veru sem minnir okkur á að við sköpum líf okkar með eigin verkum og ákvörðunum.

Í mörgum hefðum frumbyggja er vísað til kóngulónnar sem skapara heimsins. Hún birtist þar sem goðsagnavera sem oft er kölluð Amma kónguló eða Kóngulóarkonan. Hjá Hopi- og Navajo-þjóðum er Kóngulóarkonan mikilvæg skapargyðja og kennari vefnaðar, talin hafa kennt manninum listina að spinna og vefa.

Í einni þekktri hefð, sérstaklega hjá Ojibwe-fólki, er sagt að Amma kónguló hafi verndað börn með því að spinna verndarvef yfir svefnstöðum þeirra. Þegar samfélögin stækkuðu og hún g*t ekki lengur náð til allra barna fóru mæður og ömmur að búa til draumafangara sem táknrænan verndarvef. Hefur þú einhvern tímann velt því fyrir þér af hverju draumafangarar líta út eins og kóngulóarvefur? Í upprunalegu samhengi sínu er draumafangarinn ekki aðeins skraut heldur andlegt verndartákn sem tengist visku kóngulónnar og hugmyndinni um lífið sem vef tengsla, að hugsanir okkar og draumar eru hluti af stærri heild og tengjast sköpuninni sjálfri.

Í Cherokee-hefðinni er kóngulónni jafnvel eignað að hafa fært heiminum eld og ljós. Víða var talið að kónguló í húsi boðaði heppni og góða heilsu og að það bæri ógæfu í för með sér að drepa hana. Í flestum goðsögum er kóngulóin kvenleg vera vegna þess að hún skapar, verndar, vefur og nærir. Þetta tengist hugmyndum um kvenlegan sköpunarkraft, móðurorku og lífshringinn.

🕷️ Kóngulær eru ekki skordýr heldur áttfætlingar. Þær hafa átta fætur, ólíkt skordýrum sem hafa s*x. Augun eru oftast átta, þó stundum færri. Tveir hringlaga búkhlutar kóngulónnar minna einnig sjónrænt á töluna 8, hún hefur því oft verið tengd við töluna 8 í talnaspeki. Talan 8 í talnaspeki er talin tengjast efnislegum árangri, metnaði og peningum. Fólk undir áhrifum tölunnar eru oft náttúrulegir frumkvöðlar, seigir og agaðir einstaklingar.

Kóngulær spinna vef úr silki sem er einstaklega sterkt miðað við þyngd og telst eitt merkilegasta náttúruefni sem þekkist. Hringlaga vefir eru oft byggðir á mjög nákvæmri rúmfræði og kóngulóin notar líkama sinn sem mælitæki, þannig veit hún nákvæmlega hvar næsti þráður á að liggja og byggir vefinn af miklum dugnaði. Vefurinn er bæði heimili og veiðinet fyrir kóngulónna.

Kóngulær nema umhverfi sitt með hárfínum skynhárum á líkamanum sem greina titring í lofti og á yfirborði. Þegar skordýr festist í vefnum berst titringur eftir þráðunum og kóngulóin finnur strax hvar bráðin er, hversu stór hún er og hvort hún geti verið hættuleg. Silkið myndast úr fljótandi próteini inni í líkamanum og harðnar um leið og það kemur út úr spunaopum hennar. Sumar kóngulær taka jafnvel vefinn sinn niður, borða hann og endurnýta próteinið til að spinna nýjan vef. Ef mikið er um fæðu geta þær verið með vefinn sinn á sama svæði mjög lengi, jafnvel marga mánuði.

Vefurinn er fallegt tákn fyrir samtengingu alls lífs, að allt tengist og að gjörðir okkar hafi áhrif. Kóngulóin er einnig tákn þolinmæði og úthalds. Hún vinnur markvisst að markmiðum sínum, spinnur vef sinn og bíður svo þolinmóð. Ef vefurinn eyðileggst byrjar hún einfaldlega aftur. Þannig minnir hún okkur á þrautseigju, ábyrgð og það að við uppskerum eins og við sáum.

Í nútímanum hefur kóngulóin einnig sterka tengingu við hringrás lífsins. Í barnabókinni Charlotte's Web (Kóngulóin Charlotte), einni þekktustu barnabók heims, er fjallað á hlýjan og mjúkan hátt um lífshringrásina, dauðann og missi. Charlotte er þar ekki ógnvekjandi kónguló eins og oft í vestrænni menningu, heldur vitur, skapandi og verndandi. Í sögunni hefur Charlotte áhrif á örlög aðal sögupersónunnar með vefnaði sínum og snilli.

Ég sef kannski ekki alltaf alveg rólega ef kónguló birtist skyndilega í herberginu hjá mér, en þá er samt gott að staldra við og velta fyrir sér hvaða skaða þær valda okkur í raun. Í flestum tilvikum láta þær okkur einfaldlega í friði og gegna mikilvægu hlutverki í náttúrunni með því að halda skordýrum í skefjum. Eins óþægileg og okkur vestrænu fólki kann stundum að finnast kóngulóin er hún stórkostlegt spirit animal! sterk áminning um sköpunarkraft, þolinmæði og ávöxtun. Ég elska að sjá stóra kónguló úti í náttúrunni og eftir að ég kynntist sjamanískum hugmyndum finnst mér sérstaklega gaman að fylgjast með henni spinna vef sinn. ✨🕸️

Address

Reykjavík

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ásta Aldan posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share