Guðmundur Emil Einkaþjálfari

Guðmundur Emil Einkaþjálfari Löggiltur Einkaþjálfari.
Ég hef brennandi áhuga, metnað og reynslu á að hjálpa fólki ná sínum markmiðum í heilsurækt, hreyfingu, matarvenjum og næringu.

Sendu á mig línu, við munum ná árangri saman!

Ég er vegurinn og lífið, fylgið mér…Hungraður. Brjálaður í árangur.Búinn að sætta mig við það að þetta endar ekki, þetta...
17/06/2026

Ég er vegurinn og lífið, fylgið mér…
Hungraður. Brjálaður í árangur.
Búinn að sætta mig við það að þetta endar ekki,
þetta heldur svona áfram að eilífu..

Næsta mission, halda áfram
Þegar maður kemst upp á toppinn á fjallinu er þetta ekki búið, maður labbar aftur niður og fer uppá næsta fjallatind. Afhverju? Því leiðin upp er svo falleg, það er svo gaman að ganga upp guðsveg, það eru margar hindanir á leiðinni til að læra af og verða sterkari, og svo er fullt af góðu fólki á sama vegi sem hjálpar manni upp og blessar mann, við erum mörg að ganga sama fjallið - ég hef lært að elska vegferðina - að halda áfram sama hvað og ekki stoppa of lengi væla yfir hvað er langt í fjallstindinn og reyna láta ekki sjást hvað fjallið er erfitt - því ef ég get gengið upp þá ættu allir að geta það sem hafa viljann fyrir hendi.

Það er ekki nóg að vita leiðina, það er skemmtilegast að ganga upp fjallið,
fegurðin og útsýnið á toppinum er stórfenglegt,
gott að njóta þar um stund, en svo fær maður leið á því og fer uppá næsta fjall. Vegurinn er guðdómlegur.
Þessi vegferð endist að eilífu og ég fokking elska það.

Þetta á ekki að vera auðvelt, erfiðleikar styrkja okkur og byggir karekter. En ef þú lifir að fullu á hverri stundu.. er þetta skítlétt og skemmtilegt😄

Lífið er núna
Vikingar fljúga

15/06/2026

Ein önnur Víkingaskírn takk fyrir! 250 víkingar hafa nú gengið til sjávar með mér seinustu 3 helgar! Ég vill þakka öllum ykkar kærlega fyrir - þetta er bara byrjunin.
Heiður að fylgja ykkur í ValhallaVision.

Löggildingaréttindi má öðlast með að hafa samband með email samskiptum: [email protected]

Mjög fallegt. Fallegir menn, fallegt land.

13/06/2026

Guð leggur ekkert meira á menn ef þeir höndla… og ég er bara fylgja hans leiðbeiningum🤓🥸

3 mót - 4 vikur.Vegferð Stríðsmannsins ⚔️The Way of the VikingKeppti á Spáni 3 vikum eftir Íslandsmótið í Vaxtarrækt. Ko...
15/05/2026

3 mót - 4 vikur.
Vegferð Stríðsmannsins ⚔️
The Way of the Viking

Keppti á Spáni 3 vikum eftir Íslandsmótið í Vaxtarrækt. Kom heim frá Spáni 8:30 á miðvikudagsmorgni eftir 12 tíma næturbrölt og millilendingu. Flaug svo út til Svíþjóðar 7:30 morguninn eftir.

Herjaði um Stokkhólm gangandi í 5 tíma á nánast engri næringu nema vatni, steinefnum, próteindufti og smá þorski/þorskalifur. Í næstum 2-3 vikur lifði ég á þessu til að ná markmiðinu.

Tvær helgar í röð tók ég af mér 7kg og svo 10kg á um 14-16 tímum í hvort skiptið. Það er nefnilega svo þungt í mér pundið… þessir vöðvar eru fylltir af ljósi ⚡️✨😉

Ég endaði í 4. sæti af 19 í Vaxtarrækt -90kg á Sweden Pro Qualifier sem er fokking sturlað vel gert hjá okkur . Þegar ég steig á sviðið sleppti ég öllum væntingum, ég var ekki að búast við að vera kallaður upp númer 1 af öllum 19 og látinn pósa lengst af öllum.

Ég fór einn út til Svíþjóðar og dvaldi einn þar — ég nefnilega elska að vera einn með sjálfum mér. Alvöru góður félagsskapur.

Ég naut hvers einasta dags í þessu preppi. Bæði þegar ég var að svelta mig og labba 22km á dag 5 daga í röð og þegar ég var liggjandi að hlaða mig upp af mat.

Þjáning er ónauðsynleg. Sársauki verður alltaf til staðar, en maður velur:
sársauka eftirsjárinnar eða sársaukann sem fylgir því að vera BEAST.

Fyrir 8-9 mánuðum hljóp ég 2 x maraþon berfættur á 8 dögum. Núna keppti ég á 2 vaxtarræktarmótum á 8 dögum.

Ég er gerður til að berjast.

Ég þurfti að ganga í gegnum dimma dali og fara til helvítis og tilbaka til að kynnast sjálfum mér og vita hver ég er ekki.

Í fyrsta skipti í lífinu fylgi ég minni eigin innri rödd, ekki því sem aðrir segja mér að gera. Ég leyfi mér að lifa í alsælu og himnraríki sama hvað aðrir segja hvað ég á skilið.

Víkingarnir eru að vakna — og það byrjar á sjálfum mér.

Lífið er ferli sköpunar. Þú hefur valdið til að skapa sjálfan þig. Við komum af hörðu fólki sem lifði í torfbæjum fyrir aðeins nokkrum kynslóðum síðan. Við erum bókstaflega að koma úr moldinni.

On to the next mission ⚡️
Því ferðalagið er jafn skemmtilegt og áfangastaðurinn.

Takk allir sem hafa fylgst með og takk allir sem gerðu þetta með mér, maður gerir ekki s***t einn.

13/05/2026

10.000 calorie challenge 😏😮‍💨👌 takk

Þegar ég geri það allra besta fyrir mig, þá er ég að gera það besta fyrir aðra, það besta fyrir heildina.Það mikilvægast...
06/05/2026

Þegar ég geri það allra besta fyrir mig, þá er ég að gera það besta fyrir aðra, það besta fyrir heildina.

Það mikilvægasta sem ég gerði var að byrja lifa fyrir mig, gera alltaf það besta fyrir mig. (Vanda mig - það besta inniheldur alltaf mestu gleðina, þakklætið og kærleikann)

Ég í fyrsta sæti, en ég þurfti að fyrirgefa mér og ju það þarf að fara oft út með ruslið í viku amk hjá mér (borða mikið) og sama með fyrirgefninguna, ég þarf að fyrirgefa mér oft í viku, þá er ég ekkert að rífa mig niður og gera mig verri…
Held séu margir karlmenn sem gætu prófað þetta og frelsast.
En ég veit ekkert, þetta virkar bara fyrir mig.
Ég hef allavegana aldrei verið svona góður😮‍💨😎

Hlakka til að keppa, næsta sunnudag í svíþjóð, svo er komið að uppbyggingu Íslands.

Ég þakka kærlega fyrir allan kærleikann sem eg hef fengið frá ykkur, og bið ykkur nú um power og fallega strauma svo við klárum seinasta mótið með style🥇🏆👀🔱🇮🇸

06/05/2026

Ísland✅Spánn✅Sweden🔱Next Up - Þriðja mótið á 4 vikum. Við erum á sögulegu runni hérna, takk fyrir að fylgjast með, built for this kingsh*t.
Toppa formið í Svíþjóð næsta sunnudag svo tekur við Saunagusur, Svefn, Uppbygging Íslands, Víkingar Vakna. Tónlistarplata kemur út í maí/byrjun júní. Vision.

03/05/2026

Legday beint eftir keppni 🥉 eða reyndar burger&ís beint eftir keppni og svo legday🤠🙀😼🍔

30/12/2025

Kraftur kuldans🙏 Þegar mig vantar orku fer ég í heitann pott, kaldann pott og kalda sturtu fyrir æfingu. PREWORKOUT. Þarf ekki að taka langann tíma, td bara 10-15min. Kyrra hugann, undirbúa huga og líkama fyrir átökin.

Svo fer ég oft í heitann pott saunu eftir lyftingaræfingar,
Tek kalda stundum eftir cardio, ekki eftir lyftingar.

Address

Vatnsmýrarvegur, Reykjavíkurborg
Reykjavík
101

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Guðmundur Emil Einkaþjálfari posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Guðmundur Emil Einkaþjálfari:

Share