07/10/2025
Það er kominn kúltúr fyrir dala.cake þegar hlutirnir ganga vel.
Upp úr samstarfi okkar við Reykjavíkurborg varð til ný viðbót í dala.care til að halda utan um þjónustu á heimilum sem við þróuðum með endurgjöf frá starfsfólki Mururima, Rangársels og Barðastaða.
Þau fengu köku í dag til að fagna vel heppnaðri innleiðingu.
Íbúðakjarnar, þjónustuíbúðir, stuðningsíbúðir, búsetukjarnar, dagdvöl og skammtímadvalir eiga nú heima með heimaþjónustunni í dala. Það sem er mikilvægara er að fólk getur flust milli úrræða þar sem athafnir, áætlun og samskipti fylgja einstaklingnum.
Virkilega skemmtilegt verkefni sem mun létta undir í rekstri 70 heimila og 1.500 starfsmanna fyrir árslok.