Heillandi

Call Website

Heillandi Námskeið og fyrirlestrar um seiglu, streitu, samskipti & meðvirkni
Fagleg og skemmtileg framsetning á mannamáli.

Heillandi er samstarf Gyðu Drafnar Tryggvadóttur lýðheilsufr. EMPH og Kristínar Sigurðardóttur, slysa- og bráðalæknis.

Það eru laus pláss á námskeiðið Seigla, streita, samskipti, meðvirkni sem verður 06.-09. október á Hótel Grímsborgum!👉Sk...
02/10/2026

Það eru laus pláss á námskeiðið Seigla, streita, samskipti, meðvirkni sem verður 06.-09. október á Hótel Grímsborgum!
👉Skráningartengill í fyrstu ummælum.
👉Námskeiðið er styrkt af flestum sí-og starfsmenntasjóðum!
Ummæli þátttakenda:
🤓Sambland af vísindum og hlýju var áberandi. Góð samantekt á streitu, seiglu, álagi, áföllum og áhrifum þeirra með dassi af samkennd og mildi.
👏Góðir fyrirlestrar, sem fléttuðust saman eins og tveir strengir (DNA).
🙌Námskeiðið var langt umfram væntingar.
🫶 Fallegt og heilnæmt námskeið þar sem hlúð er að öllum þáttum lífshringsins.
🤝Tek með mér hugrekki og löngun til að dýpka skilning, öryggi og vellíðan fyrir mig og aðra.
Á heildina litið Kristín Sigurðardóttir

17/09/2026

Það eru ýmis verkefnin hjá Heillandi enda brýn þörf á að fræðast og finna góðar leiðir og farveg til að takast á við streitu og álag í erli og ófyrirsjánleika lífsins.
Næst er það svo námskeið á Grímsborgum!
Enn laus pláss og upplýsingar og skráning á heimasíðunni www.heillandi.is

02/09/2026

👉

Þegar kafað er dýpra í orðin sem eru í forgrunni á námskeiðinu Seigla, streita, samskipti og meðvirkni þá kemur í ljós a...
01/09/2026

Þegar kafað er dýpra í orðin sem eru í forgrunni á námskeiðinu Seigla, streita, samskipti og meðvirkni þá kemur í ljós að allt er þetta samtengt og fléttast inn í allt okkar líf í leik og starfi.

Það kemur þátttakendum oft á óvart því þeir hafa oft ekki séð þetta sett í það samhengi sem er gert á námskeiðinu og oftar en ekki heyrist: "Afhverju hefur enginn sagt mér þetta fyrr".
Það er ekki síst það sem styður við okkur að halda áfram að fræða og styðja við því þetta líf okkar er svo dýrmætt og til mikils unnið að halda okkur eins heilum og hægt er í gegnum áskoranir lífsins fyrir utan það að hafa leiðir og verkfæri til þess að styðja við okkur þegar meira þarf til.

Helst myndum við alltaf vilja geta staðið fyrir ofan fossinn og stutt við fólk að fara ekki niður hann en lífið er bara ekki alltaf þannig og því finnst okkur svo mikilvægt að miðla því sem við vitum að hægt er að vinna með eftir skipbrot til að öðlast meira þrek og auka lífsgæði 💕 Svo er þetta líka svo gaman því í hverjum hópi þátttakenda býr svo ótrúlega mikil reynsla og svo er maður manns gaman - því gleðin er svoooo mikilvæg!
Ef ekki nú - þá hvenær?

Næsta námskeið er 6.-9. október á Hótel Grímsborgum og nokkur pláss laus! Upplýsingar og skráning á heimasíðu Heillandi - tengill í fyrstu athugasemd.

Á heildina litið Heill Heimur Seigla, streita, samskipti, meðvirkni!

Skemmtilegt spjall Kristínar Sigurðardóttur hjá Heillandi í morgunútvarpinu um náttúru okkar og mikilvæg tengsl við heil...
25/06/2026

Skemmtilegt spjall Kristínar Sigurðardóttur hjá Heillandi í morgunútvarpinu um náttúru okkar og mikilvæg tengsl við heilbrigt umhverfi🌸á mín 48.18 🌿 Náttúruleysi er áhættuþáttur fyrir heilsu!
Án tengsla við náttúru er heilsan okkar ekki eins góð og hún gæti verið. Ekki vera náttúrulaus 🎋 Njótið birtunnar og moldarinnar✨

Sjómannadagurinn er á sunnudag og hátíðahöld hefjast sums staðar á landinu strax í dag. Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs, kom í þáttinn af þessu tilefni og spjallaði um sjómannadaginn, sjómannslífið og verkefni Sjómannadagsráðs.Mold er okkur alveg ótrúlega miki...

Lokaútkall!Enn hægt að taka flugið og lenda með okkur á Hótel Grímsborgum þar sem boðið er upp á fjóra daga af spennandi...
03/05/2026

Lokaútkall!
Enn hægt að taka flugið og lenda með okkur á Hótel Grímsborgum þar sem boðið er upp á fjóra daga af spennandi, skemmtilegri, slakandi og heill-andi dagskrá. Flestir sí-og endurmenntunarsjóðir styrkja!
Þetta sagði þátttakandi um upplifun sína:
“Það eru ekki mörg combó á Íslandi eins og þið tvær: Kraftmiklar og sannfærandi sem fagaðilar en líka svona skemmtilegar og skondnar þegar maður kynnist ykkur betur”.
https://www.heillheimur.is/seigla-streita-meethvirkni.html

Address

Reykjavík

Telephone

+3546974545

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Heillandi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share