Kristín Le - Einfalt & Heilnæmt

Kristín Le - Einfalt & Heilnæmt 🌿 Næring • Sjálfstenging • Andleg iðkun🌿
Heilnæmt fyrir líkama & sál
Einkatímar & matreiðslunámskeið
Bókanir & samstarf í einkaskilaboðum

30/08/2026

Það er mannlegt & þroskandi að gera mistök🤍

•Það var ekki auðveld ákvörðun…
En ég þurfti að setja sjálfan mig í fyrsta sæti.

•Eftir 3 ár án alvöru hvíldar gekk ég á vegginn og þurfti að taka mér launalaust sumarfrí sem þýðir:

1. Engin utanlandsferð
2. Ekkert verslunaræði
3. Ekkert „þarf að“

•Bara nægjusöm líf sem flest okkar hræðast og þar á meðal ég…?

• EN það gekk mun brösulegra en ég gerði mér grein fyrir því…

•Í heila mánuði komu alls konar hugsanir í heimsókn:

1. Ert að missa af lestinni með því að vera í fríi
2. Hefði átt að gera þetta öðruvísi
3. Hvað ef þú veikist og ert ekki með meiri tekjur?
4. Þú ert alltof gömul til að byrja upp á nýtt

•Það var ekki fyrr en…
5 vikur sem taugakerfið náði loksins að fatta að það þurfti ekki alltaf að vera „að“ til að lifa af 🙏🏽 Stundum þurfum við aðeins lengri tíma til að finna leið aftur heim til okkar sjálfra.

25/06/2026

- Í tæknivæddu samfélagi komumst við ekki hjá því að vera fyrir framan skjái mest af deginum. Við upplifum stöðugt álag vegna tímaskorts og gleymum því að grunnþarfir okkar hafa ekki breyst þrátt fyrir ógnarhraða tækniþróunarinnar.

- Líkaminn og hugurinn leita enn að því sem þau eru þróuð fyrir, eins og hreyfingu, dagsbirtunni, kyrrðinni, náttúrunni og sérstaklega að vera í nánum félagslegum tengslum.

- Stundum er nóg að gefa sér 10 mínútur í útiveru og leyfa huganum að róast og reika og njóta sólarinnar, skýjanna, gróðursins og blómanna🌿 Eða hringt í þau sem okkur þykir vænt um.

Þakklát fyrir tækifæri til að deila hluta af sögu minni og aðdragandanum að „Einfalt og heilnæmt“🙏🏻
14/06/2026

Þakklát fyrir tækifæri til að deila hluta af sögu minni og aðdragandanum að „Einfalt og heilnæmt“🙏🏻

Kæru vinir💚Sumarið er loksins að heiðra okkur með nærveru sinni. Ég óska ykkur öllum gleðilegs sumars, hvort sem það er ...
09/06/2026

Kæru vinir💚
Sumarið er loksins að heiðra okkur með nærveru sinni. Ég óska ykkur öllum gleðilegs sumars, hvort sem það er í sólskini eða í rigningunni. En umfram allt vona ég að sumarið gefi ykkur tíma til að hægja á, njóta, veita ykkur sjálfum athygli og sýna náunganum hlýju.🌿
Undanfarið hef ég sjálf tekið pásu frá samfélagsmiðlum og gefið mér rými til að tengjast lífinu og sjálfri mér betur. Á sama tíma hlakka ég til að koma bráðlega aftur og deila með ykkur fleiri sumarmatreiðslunámskeiðum, uppskriftum, vangaveltum um lífið og tilveruna, og sérstaklega andlegum málefnum sem liggja mest í hjartanu🙏

Fyrir ykkur sem hafið ástríðu fyrir súrdeigsbrauðum er vert að kíkja á þessa heilhveiti- og lífrænu súrdeigsbrauðuppskri...
31/05/2026

Fyrir ykkur sem hafið ástríðu fyrir súrdeigsbrauðum er vert að kíkja á þessa heilhveiti- og lífrænu súrdeigsbrauðuppskrift sem ég deildi með lesendum Morgunblaðsins í gær.

„Helgarnar eru til að hægja á, njóta augnabliksins og eiga góða samverustund með okkar nánustu og leyfa lífinu að vera eins einfalt og hægt er,“ segir Kristín Le mannfræðingur og matgæðingur.

30/05/2026

Hægjum á, njótum augnabliksins með þeim sem okkur þykir vænst um.

Róleg stund í eldhúsinu getur aukið núvitund og gefið taugakerfinu svigrúm til að vera í jafnvægi.

Stundum er besta endurhleðslan einfaldlega að vera aðeins meira hér og nú🌿

27/05/2026

-Hvað geta 30 mínútur í náttúrunni gert fyrir okkur?

-Margar rannsóknir hafa sýnt fram á að efni phytoncides frá gróðrinum geta meðal annars lækkað kortisólmagn, róað taugakerfið og styrkt ónæmiskerfið

- Í Japan er þessi heilaga stund betur þekkt sem skógarbað, Shinrin-Yoku og felst í því að njóta kyrrðar og nærveru í faðmi náttúrunnar🎋

-Það er ekki tilviljun að okkur líði betur eftir göngutúr eða að vera í nánd við í náttúrunni þar sem hugurinn fær loksins að anda og hvílast 💚Kaplan & Kaplan (1989), Ulrich (1984) og Bratman o.fl. (2015)

19/05/2026

Það er þetta sem bjargaði mér úr veikindum og er ennþá að bjarga mér á hverjum degi🌱

Address

Reykjavík

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Kristín Le - Einfalt & Heilnæmt posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share