28/06/2024
Í dag eru blendnar og óskaplega skrítnar tilfinningar í gangi hjá mér en í dag var síðasti dagurinn minn á elsku litlu snyrtistofunni minni hér á Þórshöfn❤️
Þegar ég ákvað að prófa að opna snyrtistofu á Þórshöfn í nóvember 2011 vissi ég ekkert hvort þetta myndi ganga hjá mér en þið kæru viðskiptavinir sýndu það svo vel að það er alveg hægt að reka snyrtistofu á Þórshöfn og hafa nóg að gera❤️
Það er alveg dásamlegt að hafa svona þjónustu á svona litlum stöðum og sorglegt þegar þjónustustig dettur út í okkar litla samfélagi😔 Það er nefnilegar þannig að við lokun á snyrtistofunni minni þá lokar bæði sú þjónusta sem og verslun þar sem ég er með mikið af snyrtivörum til sölu. Og eins og í mínu tilfelli á koma mikið af viðskiptavinum frá nær sveitarfélugunum sem gera meira úr ferðinni sinni til mín, t.d. versla í Kjörbúðinni, apótekinu, ríkinu og sjoppunni og skilja því slatti eftir á nokkrum stöðum hjá okkur sem er gott fyrir okkur öll😉
Því vona ég svo sannarlega að hingað flytji snyrtifræðingur og opni stofu hér á staðnum aftur❤️
Elsku elsku viðskiptavinir, bæði hér í Langanesbyggð sem og frá stöðunum í kring,
Takk fyrir þau tæpu 13 ár og sum ykkur hafið verið hjá mér frá upphafi og sýnt mér dyggann stuðning❤️. Fyrir ykkur elsku viðskiptavinir verð ég ævinlega þakklát því án ykkar hefði þetta aldrei gengið❤️
2.september mun ég byrja að vinna á Snyrtistofunni Jónu í Hamraborg í Kópavogi (minni gömlu stofu sem ég vann á áður en ég kom norður😉).
Ef þið komið suður og viljið koma í snyrtingu til mín þangað þá endilega heyrið í mér ;)
Stofan notar noona.is fyrir tímapantanir en ekkert mál líka að heyra beint í mér (set link á appið og síma á stofunni þegar nær dregur).
Enn og aftur ástarþakkir fyrir allt😃
Ást og friður❤️
Kveðja Valgerður