Jógahornið

Call Directions Website

Jógahornið Jógahornið er staðsett á Unubakka 4 Þorlákshöfn,þar er vettvangur fyrir jógaiðkun ofl. tengt heilsu.

Jóga hefst mánudaginn 31.ágúst og verður í Jógahorninu Unubakka 4. Jóga verður mánudaga kl. 17.30, miðvikudaga kl. 16.15...
20/08/2026

Jóga hefst mánudaginn 31.ágúst og verður í Jógahorninu Unubakka 4. Jóga verður mánudaga kl. 17.30, miðvikudaga kl. 16.15 og föstudaga kl. 12.00. Verð fyrir 10 tíma kort er 18.000 kr. hægt er að kaupa stakan tíma á 2.000 kr. Allir velkomnir🙏 Karlajóga byrjar miðvikudaginn 2.sept kl.17.30 verð fyrir 10 tíma kort er 18.000 kr hægt er að kaupa stakan tíma á 2.000 kr. Í Jógahorninu verða þægilegir og fjölbreyttir Hatha-jógatímar ásamt yin yoga, áfallajóga og ýmist bland sem henta öllum. Jógatímarnir vinna gegn streituáhrifum, bæta einbeitingu, auka líkamlegan styrk, liðleika og andlegan vellíðan. Markviss nálgun í hverjum tíma, jógaæfingar, góðar öndunaræfingar og slökun í lokin. Jóga er frábær leið til að hlúa að líkama og sál ❤️ Morgunspinningtímarnir byrja mánudaginn 24.ágúst. Tímarnir eru í Íþr.húsinu mánudaga-miðvikudaga-föstudaga kl 6 og flesta laugardaga kl 10 💪🚴🏿‍♀️ Skráning og nánari uppl. hjá Sóley eða hér í skilaboðum 💞

Söngvaseiður*Hugleiðsla og Slökun með Tónheilun*Þriðjudaginn 18.ágúst kl 19:30Jógahornið ÞorlákshöfnUnnur Arndísardóttir...
15/08/2026

Söngvaseiður
*Hugleiðsla og Slökun með Tónheilun*

Þriðjudaginn 18.ágúst kl 19:30
Jógahornið Þorlákshöfn

Unnur Arndísardóttir Seiðkona býður uppá friðsæla og mjúka kyrrðarstund í Jógahorninu þar sem Unnur leiðir hugleiðslu og notalega Tónheilunar-slökun með söng og mjúkum trommuslætti.

Unnur semur og flytur sína eigin tónlist - en hún hefur tileinkað líf sitt Íslensku Gyðjunni og flytur við þetta tilefni ljóð og tóna tileinkaða Gyðjuorkunni.

Með hugleiðslu og slökun tengjumst við friðnum hið innra, og færum kyrrð og sátt inní líf okkar og umhverfi.

Skráning og nánari upplýsingar hjá Unni Arndísar á [email protected]

Nánari upplýsingar um viðburðinn má nálgast hér: https://uni.is/songvaseidur/

Engin reynsla af jóga eða hugleiðslu þörf til að taka þátt.
Einnig er hægt að sitja eða liggja allan tímann og því er hreyfihömlun af öllum toga ekki fyrirstaða þátttöku.

Elsku Linda Rós verður í Jógahorninu miðvikudaginn 5.ágúst ❤️ ég mæli með að fara til hennar og prófa 🥰 sjá augl.hér fyr...
03/08/2026

Elsku Linda Rós verður í Jógahorninu miðvikudaginn 5.ágúst ❤️ ég mæli með að fara til hennar og prófa 🥰 sjá augl.hér fyrir neðan.

Dásamleg stund í Jógahorninu 🩷💫 - Íslandsdætur 🫶
23/07/2026

Dásamleg stund í Jógahorninu 🩷💫 - Íslandsdætur 🫶

Elsku Linda Rós verður í Jógahorninu fimmtudaginn 23.júlí og föstudaginn 24.júlí ❤️ ég mæli með að fara til hennar og pr...
21/07/2026

Elsku Linda Rós verður í Jógahorninu fimmtudaginn 23.júlí og föstudaginn 24.júlí ❤️ ég mæli með að fara til hennar og prófa 🥰 sjá augl.hér fyrir neðan.

Elsku Linda Rós verður í Jógahorninu föstudaginn 17.júlí ❤️ ég mæli með að fara til hennar og prófa 🥰 sjá augl.hér fyrir...
15/07/2026

Elsku Linda Rós verður í Jógahorninu föstudaginn 17.júlí ❤️ ég mæli með að fara til hennar og prófa 🥰 sjá augl.hér fyrir neðan.

Gleðilegt Fullt Tungl!Tunglið er fullt þann 29.júní kl 23:56 að íslenskum tíma.Tungl Gyðjunnar Snotru er tungl léttleika...
29/06/2026

Gleðilegt Fullt Tungl!

Tunglið er fullt þann 29.júní kl 23:56 að íslenskum tíma.

Tungl Gyðjunnar Snotru er tungl léttleika, mildi og fegurðar.
Á þessu fulla tungli er upplagt að dvelja í kyrrð og sátt með Móðir Náttúru. Njóta mildi umhverfis okkar og vera góð við okkur sjálf.

Gyðjan Snotra er gyðja visku, fegurðar og mildi. Hún hvetur þig til að vera góð við sjálfa þig í sumri og sól. Njóta fegurðar þinnar og umhverfis þíns. Upplagt er að njóta gönguferða og stunda í náttúrunni. Jafnvel heimsækja heitar lindir eða uppsprettur, og njóta þess að eiga kyrrláta stund með sjálfri sér.

Fulla tunglið færir sérstaka sumarblessun, því ennþá ríkja töfrar Sumarsólstöðva, og því upplagt að njóta friðar og mildi sumars á þessu fulla tungli.

Njóttu þess að eiga gönguferðir í algjörri þögn. Njóttu þess að hlusta og dvelja með athygli þína við Móður Jörð. Hlusta á skilaboð hennar í sumrinu og leyfa þér að gefa eftir inn í andartakið. Því þó að Móðir Jörð sé í fullum blóma og sýní orku vaxtar og blómgunar - að þá er hún í allri sinni mildi og blessun að færa þér tækifæri til friðs og kyrrðar.

Njótum þess í dag að anda djúpt og gefa eftir.

Njótið sumarsins og bjartrar sumarnæturinnar kæru vinir!

Megi allir draumar okkar rætast!

//

Happy Full Moon!

The Moon is full on June 29 at 23:56 GMT / June 30 01:56 CET.

The Moon of Goddess Snotra is filled with gentleness & beauty. On this full moon we enjoy dwelling in peace & contentment with Mother Nature. Enjoy the softness of your environment & be good to yourself. Goddess Snotra is the Goddess of wisdom, beauty & gentleness. She encourages us to be kind towards oneself in summertime. To enjoy the beauty of nature & all that surrounds you. Now is the perfect season for walks in nature & to enjoy sacred times with Mother Earth. Even visit hot springs or sacred waters in your area, & enjoy quiet times with yourself.

The Full Moon brings special summer blessings as we are still close to the high energies of Summer Solstice, so enjoy the powerful moonlight on this Full Moon. Give yourself the gift of quiet walks in nature - in total silence - & listen to Mother Earth around you. Bring your attention to the sacredness of nature - & be willing to hear what she whispers to you in summer.

Even though Mother Earth is full of fiery energies of summertime - She is also offering us her quiet, soft embrace. Encouraging us to dwell with Her - & give in to beauty.

Have you taken a deep breath today?

Enjoy the summer dear friends!

May all our dreams come true! 🩷

( Unnur Arndísardóttir)

Góðan daginn 🩷 hugleiðing dagsins 🩷🙏
26/06/2026

Góðan daginn 🩷 hugleiðing dagsins 🩷🙏

Vorhátíð 💛Gyðjuathöfn til fögnuðar voriJógahornið - Laugardag 11.apríl 2026Laugardaginn 11.apríl fögnum við Gyðjunni Fre...
07/04/2026

Vorhátíð 💛

Gyðjuathöfn til fögnuðar vori

Jógahornið - Laugardag 11.apríl 2026

Laugardaginn 11.apríl fögnum við Gyðjunni Freyju og komu vorsins með Gyðjuhátíð, í Jógahorninu í Þorlákshöfn.

Við komum saman til fögnuðar vorsins og vorgyðjunnar - en einnig til að fagna systralaginu og töfrum Íslandsdætra.

Vorið læðist að í mildi sinni og fegurð, og færir okkur tækifæri til að skoða hvaða fræ það eru sem við viljum næra og gefa líf inn í sumar og bjartari daga.

Náttúran í vorinu sínir okkur hugrekki sitt og kraft, þegar Móðir Jörð fæðir á ný vorið og fegurðina. Það eru töfrandi tímar framundan og við tökum fagnandi á móti bjartari dögum.

Freyja - Ástargyðjan sem kveikir ástríðuna í maganum og kærleikann í hjartanu. Freyja birtist í náttúrunni á þessum árstíma sem brumið á trjánum, sem mjúkur vordagur þar sem blærin kyssir kinn, og sem fallegt vorblóm sem gleður hjartað. Hún minnir okkur á vonina og trúnna á að jafnvel eftir langan, dimman veturinn kemur ljúft sumarið að lokum.

Freyja kennir okkur að elska, okkur sjálfar og aðra. Hún færir blessun vorsins, og minnir okkur á að tileinka okkur eiginleika náttúrunnar að vori og leyfa okkur að blómstra eftir langan veturinn. Hún blessar líkama okkar með mýktinni og sjálfskærleikanum.

Í þessari Freyjuathöfn tileinkaðri Gyðjunni Freyju útbúum við ástargaldur og kærleiksaltari tileinkað Móður Jörð, við fáum hreinsun og blessun sem veitir okkur styrk í að trúa og treysta enn betur á kærleikann og ljósið sem býr innra með okkur öllum. Við hugleiðum og óskum okkur, og þannig göngum hugrakkari til móts við sumarið.

Allar konur hjartanlega velkomnar.

Hvar: Jógahornið, Unubakka 4, Þorlákshöfn.
Hvenær: Laugardaginn 11.apríl kl 13:00
Hvað kostar: 7.000 kr

Skráning og nánari upplýsingar hjá Unni Arndísar í síma 696-5867 eða á [email protected]

Nánari upplýsingar má finna hér:

Elsku Linda Rós verður í Jógahorninu dagana 9.apríl, 10.apríl og 12.apríl ❤️ ég mæli með að fara til hennar og prófa 🥰 s...
06/04/2026

Elsku Linda Rós verður í Jógahorninu dagana 9.apríl, 10.apríl og 12.apríl ❤️ ég mæli með að fara til hennar og prófa 🥰 sjá augl.hér fyrir neðan.

Address

Unubakki 4
Þorlákshöfn
815

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Jógahornið posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share