08/09/2026
Þjálfun hefst á ný eftir sumarfrí, mánudaginn 14. september að Bjargi
Á mánudögum og miðvikudögum:
Hópur AB: 16:00- 16:50 Róleg leikfimi
Hópur C: 17:00- 17:50 Miðlungs erfið leikfimi
Hópur DF: 18:00-18:50 Miðlungs til erfið leikfimi
HL-stöðin býður upp á:
- sérhæfða þjálfun fyrir fólk með hjarta- og lungnasjúkdóma
- öruggt umhverfi við þjálfun
- þjálfarar eru sjúkraþjálfarar
- þolpróf 1x að vetri
- fræðslufyrirlestra á haust- og vorönn
- aðhald við þjálfun
- góðan félagsskap
Nýir þátttakendur eru velkomnir í hóp með okkur
Allir nýir þátttakendur þurfa að koma með beiðni í sjúkraþjálfun frá lækni.
ATH! SKJÓLSTÆÐINGAR BORGA NÚ KOMUGJÖLD TIL RÍKISINS FYRIR HVERN TÍMA SAMKVÆMT NÝRRI REGLUGERÐ FRÁ STJÓRNARRÁÐINU, EÐA S.S. HEILBRIGÐISRÁÐHERRA!
500 kr fyrir öryrkja
1000 kr fyrir aldraða
1500 kr fyrir almenna einstaklinga
Skjólstæðingar skrá sig inn í Gagna með kennitölu og nafni. Skjólstæðingum er frjálst að nota búningsklefa.
Yfirsjúkraþjálfari er Elín Rún Birgisdóttir. Frekari upplýsingar eru í síma 8494340 17:30- 18:00 eða á [email protected]
Sjáumst,
Starfsfólk HL-stöðvarinnar