08/06/2026
Á síðustu árum hefur skilningur okkar á hreyfingu og heilsu verið að breytast. Í auknum mæli er horft til þess hvernig hreyfing hefur áhrif á líðan okkar, taugakerfið og tengingu okkar við eigin líkama, fremur en að einblína eingöngu á afköst, kaloríubrennslu eða árangur í líkamsrækt. Sú nálgun kallast á ensku somatic movement eða mindful movement og hér í greininni verður talað um meðvitaða hreyfingu. Hún snýst um að auka líkamsvitund með því að hægja á og skynja það sem við erum að gera í gegnum hreyfingu.
Í hefðbundinni líkamsrækt hingað til hefur fókusinn oftast verið á mælanlegan árangur. Hraða, þyngdir, endurtekningar eða tíma. Í meðvitaðri hreyfingu er áherslan önnur. Hún snýst um að auka tengingu við líkamann á meðan hreyfingin á sér stað. Að finna hvernig hreyfing byrjar og endar. Hvar hún er auðveld og hvar hún er takmörkuð. Hvernig hún breytist þegar athyglin er færð inn í hana. Að vera fyllilega til staðar í því sem maður er að gera.
Í umræðunni um meðvitaða hreyfingu er síðan til hugtakið interoception en það vísar til getunnar til að skynja innra ástand líkamans. Innri skynjun eða líkamsvitund. Að skynja andardráttinn, hjartsláttinn, spennu og slökun í vöðvum, tilfinningar, orku eða þreytu.
Í hröðum lífsstíl verður þessi skynjun okkar stöðugt veikari vegna þess að við erum undir álagi, mikið í höfðinu á okkur, förum úr einu verkefni í annað, erum bundin við skjá og upplifum stöðugt upplýsingaflæði. Hreyfing með athygli, meðvituð hreyfing, getur hjálpað til við að endurvekja þessa tengingu við sig með því að efla getuna til að vera á staðnum í því sem maður er að gera, finna og skynja.
Lestu allan pistilinn hér:
https://www.sjalfsraekt.is/frodleikur/