Fjölskylduráðgjöf Norðurlands, Skref var stofnuð 2014. Þar starfa 3 fjölskyldufræðingar : Ásta Arnbjörg Pétursdóttir, Fanney Jónsdóttir og Ólína Freysteinsdóttir. Bakgrunnur þeirra er ólíkur en allar hafa þær lokið námi á mastersstigi í Fjölskyldumeðferð frá HÍ.
Ásta hefur starfað sem fjölskyldufræðingur frá 2013. Hún lauk BA prófi í félagsvísindum frá Háskólanum á Akureyri 2011 og fjölskyldumeðf
erðarnámi frá Endurmenntun Háskóla Íslands 2013. Bakgrunnur Ástu kemur úr heilbrigðiskerfinu þar sem hún starfaði í mörg ár sem sjúkraliði, lengst af við öldrun en einnig á geðsviði, barnadeild og almennum deildum. Frá 2013 hefur Ásta starfað í fjölskyldumeðferð Heilsugæslunnar á Akureyri en samhliða því hefur hún starfað á Skref Fjölskyldurágjöf Norðurlands. Ásta leggur áherslu á allt sem viðkemur tengslum fólks, við börn sín, maka, fyrrum maka, stórfjölskyldu, tengdafjölskyldu, barnabörn ofrv. Í meðferð er lögð áhersla á að leita nýrra leiða til að styrkja sjálfsmyndina, ástina, foreldrahlutverkið og til að takast á við áskoranir lífsins allt eftir því hvað við á hverju sinni. Ásta hefur einnig reynslu í ráðgjöf við samsettar fjölskyldur, skilnaðarúrvinnslu og starfslok.
Ólína býður upp á einstaklings-, fjölskyldu- og paraviðtöl. Hún hefur lokið mastersgráðu í fjölskyldumeðferð frá Háskóla Íslands. Í meistaraverkefni sínu lagði hún áherslu á samskipti unglinga og foreldra vegna netnotkunar. Farsæl samskipti í fjölskyldum eru ekki án vanda , heldur virðast þær fjölskyldur hafa bjargir (verkfæri eða ráð) sem gagnleg eru til að vinna sig út úr vanda sem upp kemur. Sálfræðingar vinna með sálrænan vanda en fjölskylduráðgjafar vinna með fjölskyldukerfið. Oft vilja fjölskyldur festast í óheppilegu fari samskipta sem nauðsynlegt er að brjóta upp og er fjölskyldufræðingar vel til þess fallnir að hjálpa til við að brjóta upp slíkt munstur. Fanney lauk meistaragráðu í fjölskyldumeðferð frá Háskóla Íslands 2014. Í meistaraverkefni sínu fjallaði hún um Áhrifar fjarbúðar á fjölskyldur. Í dag starfar hún sem ráðgjafi í málefnum fatlaðra og hefur mikla reynslu í starfi með foreldrum barna með sérþarfir. Hún hefur einnig starfað um nokkurt skeið sem ráðgjafi inn á heimilum, við almenna uppeldisráðgjöf, skipulag og svefnráðgjöf ungbarna. Hún veitir ráðgjöf og meðferð fyrir einstaklinga, pör/hjón og fjölskyldur. Hún er í diplómanámi í Handleiðslu við Félagsráðgjafadeild HÍ.