Löggiltur Sjúkranuddari,(hætt að nudda og búin að loka stofunni) Klínískur dáleiðari og Stjörnuspekingur🌹Ætla að bjóða uppá djúpheilun, (sambland af dáleiðslu og heilun) einnig lestur í stjörnukort og spil. Ég verð með einkatíma í: SJÚKRANUDDI, HEILUNARNUDDI (lestur í stjörnurog spil, nudd,heilun), DJÚPHEILUN (sambland af dáleiðslu, heilun og fyrrilífsheilun), DÁLEIÐSLU og LESTRI ÚR STJÖRNUKORTI m
eð RÁÐGJÖF. LÍFSÝNARFASTAN
Ég kem til með að leiða Lífsýnarföstuna vorið 2022 eins og undanfarin ár og ætlum við að byrja þriðjudaginn 19 apríl kl 17.30 með kynningu í Zontahúsinu Aðalstræti 54 Fastan byrjar svo sunnudaginn 24 apríl kl 11 að Helgafelli á Svalbarðsströnd. Lífsýnarfastan er yndislegt þriggja vikna ritúal þar sem lögð er áhersla á hreint mataræði sem hreinsar og styrkir líkamann og hugleiðslur og ljósæfingar sem hreinsa tilfinningar og huga. ORKUSTÖÐVAR MANNSINS
Orkustöðvanámskeið I og II
Þegar við hugleiðum inná orkustöðvar líkamans er markmiðið að dýpka tenginguna milli persónu, sálar og undirvitundar, og gera þannig meðvitaða þá þætti í fari okkar sem við erum ómeðvituð um, bæði ljós og skugga. Við viljum draga fram ljósið í sálinni, efla okkar innri styrk og sjálfstraust til að þeir hæfileikar sem við komum með inn í þetta líf fái að njóta sín. Við þurfum líka að verða meðvituð um þætti í undirvitundinni sem geta hindrað okkur í að gera óskir okkar og drauma að veruleika. Við lærum að þekkja 7 megin orkustöðvarnar, vinnum með tákn í draumum og hugleiðslu, skoðum hugtökin karma, sjálfskarma og fyrri líf og þróun sálarinnar. SPEGLUN STJARNANNA Í SÁLINNI, námskeið í hugleiðslu. Við hugleiðum inná mystík og orku plánetanna og gerum meðvitað hvernig þessi orka speglast í ljósi persónu og sálar rétt eins og orka hinna fornu guða sem pláneturnar eru nefndar eftir. Ef til vill hefur manneskjan varpað bæði ljósi sálarinnar og sínum mannlega breiskleika yfir á guðina til að geta speglað sig í þeim og lært þannig og þroskast. SJÚKRANUDDSTOFA BJARGAR
HRAFNAGILSSTRÆTI 14
600 AKUREYRI