Höfuðbeina og spjaldhryggjarmeðferð Elízu

Höfuðbeina og spjaldhryggjarmeðferð Elízu Höfuðbeina og spjaldhryggjarmeðferð er milt og rólegt meðferðarform sem hentar öllum aldri. Engir fastir tíma hafið samband á Facebook eða gsm

Meðferðir bæði á bekk eða í vatni. Í Reykjavík en fer líka út á land að meðhöndla. Meðferð á bekk

Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð fer fram með þeim hætti að í flestum tilvikum liggur sá er þiggur meðferðina á bekk og er fullklæddur. Meðferðaraðilinn byrjar á að greina hreyfinguna í mænuvökvanum með því að þreifa eftir henni á nokkrum stöðum á líkamanum, finnur hann hvar spenna liggur sem hin

drar hreyfinguna. Einnig leitar hann eftir staðbundinni spennu í bandvef. Meðferðin felst í því að losa um spennuna í bandvefnum og því að liðka til fyrir hreyfingu höfuðbeina og spjaldbeins. Síðan eru þessi bein notuð til að toga léttilega í himnurnar sem festast við þau. Þannig næst að losa um spennu í þessu himnukerfi. Algengt er að þessi meðferð taki um klukkustund í senn en það er mjög misjafnt eftir einstaklingum hve oft þarf að koma til að liðka vel um kerfið. Langflestir finna fyrir verulega bættri líðan á fyrstu 1-3 skiptunum. Hafa mjög margir gert þessa meðferð að reglubundnum þætti í sinni heilsueflingu. Yfirleitt er notaður léttur þrýstingur eða tog sem hefur að markmiði að meta og meðhöndla himnurnar sem umlykja miðtaugakerfið. Þessi meðferð vinnur með líkamanum í að auka eigin getu til að efla starfsemi miðtaugakerfisins, minnkar neikvæðar afleiðingar streitu, eflir almennt heilsufar og eykur viðnám gegn sjúkdómum. Meðferð í vatni

Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð losar um verki, bólgur, spennu og önnur líkamleg vandamál. Í vatni er meðferðin mun kröftugri en þegar unnið er á meðferðarbekk. Það er manninum eðlilegt að líða vel í vatni sem hefur lengi verið viðurkennt sem ákjósanlegt umhverfi til hverskyns heilunar. Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð í vatni er kröftugt meðferðarform og árangursríkt, því hæfni meðferðaraðilans nýtist margfalt.
Í vatninu getur þiggjandi meðferðarinnar hreyfst óhindrað eins og í þrívídd. Það þýðir að líkaminn nær að losa um spennu og vandamál sem oft er ekki auðvelt að komast að þegar unnið er á meðferðarbekk.

17/04/2026

Sunnudagana 19. og 26.apríl lausir tímar í meðferð í vatni milli 15.00 og 17.00. Hver meðferð 40 mínútur. Hafið samband á email eða í 8970823. Fer fram í Mörkinni Suðurlandsbraut

09/04/2026

Sunnudagur 12.apríl lausir tímar í meðferð í vatni milli 15.00 og 17.00. Hver meðferð 40 mínútur. Hafið samband á email eða í 8970823. Fer fram í Mörkinni Suðurlandsbraut.

Address

Garðabær

Telephone

+3548970823

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Höfuðbeina og spjaldhryggjarmeðferð Elízu posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Höfuðbeina og spjaldhryggjarmeðferð Elízu:

Share