31/07/2026
Í dag er ég að hætta sem þjónustudýralæknir hér á Hornafirði. Ég hef verið að þjóna svæðinu síðan haustið 2008 og það hefur verið æðislegur tími hér og hef ég haft mjög gaman af að sinna öllum þessum fjölbreyttu verkefnum sem komu upp á öllum þessum árum. Ég vil þakka öllum dýraeigendum fyrir traustið sem þið hafið veitt mér og það verður margt eftir í minningunni sem ég tek með mér og sem ég er mjög þakklát fyrir.
En ég verð á bakvakt yfir verslumannahelgina og svo verður svæðið þjónustað (þó að það verði aðeins takmörkuð þjónusta) þangað til 15.8.
Núna næsta þriðjudag taka Árnína og Guðbjartur við gæludýra- og landbúnaðavörum frá mér og hlakkar þeim mikið til að þjónusta ykkur hér á Hornafirði áfram. Til að byrja með verður afgreiðslan á sínum stað á Hólabraut 13 í bílskúrnum, á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum frá klukkan 17-18 þangað til að þau geta opnað í nýju og stærra húsnæði. Þið getið fengið upplýsingar um nýja dýrabúð á facebooksíðu Díma.
Takk fyrir öll þessi ár kæru dýraeigendur nær og fjær!