25/02/2026
Kæru Sána Unnendur,
Árshátíðarfögnuður næstu skipti🥳
Liðin eru tvö ár þessar stundir síðan við gusuðum fyrst formlega í Suðurbæjarlauginni 😇
Við höldum áfram gusast á miðvikudögum🤩
Skráning opin fyrir mars mánuð ✅👍
Ég vill formlega staðfesta að við megum halda áfram miðvikudags gusunum okkar óáreittum þangað til annað kemur í ljós🔥
Þó að það hafi komið fram í fjölmiðlum 13 febrúar að borgarstjóri hafi staðfest þetta þá vill ég líka minnast á þetta hér, enda eru sumir gestir en að spyrja mig út í þetta til dagsins í dag😊
Hérna er fréttin frá fundi bæjarstjóra:
https://www.fjardarfrettir.is/frettir/baejarstjori-svara-spurningum-um-stora-saunumalid
Hérna er önnur frábær grein sem leggur ríka áherslu á mikilvægi þjónustunnar sem við höfum haldið gangandi saman, ekki bara ég, heldur frábæra starfsfólk laugarinnar og að sjálfsögðu gestirnir:
https://www.fjardarfrettir.is/umraeda/mikilvaegi-thess-ad-halda-gusu-thjonustu-i-sauna-klefum-sudurbaejarlaugar-opinni
Takk fyrir allt, stuðninginn og yndislegu stundirnar 🥰
- Gusumeistara dömurnar sem hafa fylgt mér síðan kvennaklefinn opnaði aftur, þær eru yndislegar, endilega kíkið til þeirra kvenna megin 🔥🧖♀️✨
- Shout out á bestu klakana á klakanum frá Klakavinnslan sem er stoltur styrktaraðili Sauna Zen Iceland 🧊🙏
Sjáumst hress í hitanum 🔥
Lifið Heil!
Ást, Friður og Sána 🫶✌️🧖♀️🧖🧖♂️
Farið verður yfir heimildir um afnot af eignum í eigu bæjarins á næsta fundi fræðsluráðs. Þetta kemur fram í svari við fyrirspurnum Fjarðarfrétta til bæjarstjóra 9. febrúar sl. Þetta gerist í framhaldi af undirskriftalista sem hrundið var af stað í kjölfar þess að samkomula...