16/06/2026
Yfir 700 manns hafa nú þegar forskráð sig fyrir haustið 2026 hjá Virkni og Vellíðan!
Með ört stækkandi starfsemi leitum við því að fleiri frábærum þjálfurum til að slást í hópinn okkar. Ef þú hefur menntun á sviði þjálfunar, íþróttafræði, sjúkraþjálfunar eða sambærilegu námi og hefur áhuga á að hafa jákvæð áhrif á heilsu og lífsgæði fólks, þá viljum við heyra frá þér.
Um er að ræða gefandi starf í öflugu teymi þar sem hreyfing, heilsa og mannleg samskipti eru í forgrunni.
Áhugasamir eru beðnir um að senda ferilskrá á [email protected] fyrir 30. júní.