Nærandilíf

Nærandilíf NærandiLÍF býður upp á heilsueflandi námskeið og nudd. Góð heilsa er miklu meira en bara næring

Það er ákveðin ró sem ég upplifi þegar ég hægi á, þegar ég fer úr því að gera yfir í að vera í andartakinu.Ég hef undanf...
05/05/2026

Það er ákveðin ró sem ég upplifi þegar ég hægi á, þegar ég fer úr því að gera yfir í að vera í andartakinu.

Ég hef undanfarið nýtt mér að ganga í náttúrunni til að hægja á mér, stíga aðeins út úr hraðanum, leyfa hjarta að opnast, taugakerfinu að gefa eftir og hlusta á hvað líkaminn minn er að segja við mig. Gefa eftir. Þannig næ ég að takast betur á við áreiti og streitu.

Það er eitthvað sem gerist þegar við gefum okkur þetta rými, þessa innri pásu. Þegar við förum inn í hjartað okkar. Streitan missir máttinn, andardrátturinn mýkist, innsæið eflist og við komumst aðeins nær okkur sjálfum, þannig náum við að vera til staðar, verandi fyrir okkur.

Út frá því verða hugsanir skýrari, orkan sterkari, tilfinningar léttari og allar ákvarðanir verða auðveldari og lausnir koma skýrar. Heilunarmáttur líkamans eykst og við náum að flétta betur saman huga og hjarta, úr verður betri lífsorka og vellíðan í daglegu lífi.

Út frá því þessum töfrum hjartans langar mig að bjóða þér að ganga með mér í náttúrunni. Þar sem við ætlum að stíga aðeins út úr hraðanum.

Við vinnum mjúklega með:
🌿 taugakerfið
🌿 líkamsvitund
🌿 þakklæti
🌿skapa rými fyrir að hlusta hvað er að gerast hið innra
🌿tengjast náttúrunni

Þennan dag er líka ofurtungl, fullt tungl sem er aðeins nær jörðinni sem gæti verið með sterkari orku. Kannski mun það styðja þig að sjá skýrar, finna dýpra og sleppa aðeins meiri orku sem er stöðnuð. Eitthvað sem þú ert tilbúin að sleppa og eitthvað sem vill fá að vaxa.

Þetta er ekki spurning um ákveðna frammistöðu um að verða að gera heldur er þetta nærandi stund sem við leyfum okkur að vera án dómhörku. Bara þú, eins og þú ert.

Þessi ganga er fyrir þig ef þú skynjar:

💛 stíga aðeins út úr hraðanum
💛 tengjast sjálfri/um þér betur
💛 finna meiri ró og jafnvægi
💛 vera í nærandi samveru

Við göngum í rólegu flæði, stöldrum við, gerum mjúkar líkamsmiðar æfingar
leyfum náttúrunni að halda utan um okkur.

Ef þetta kallar á þig…þá ertu svo velkomin 💛 Gangan er ókeypis . Ath gengið er hægt og ekki brekkur. Næsta ganga er 16. maí kl: 10:00, við Hvaleyrarvatn

Skráning:[email protected] eða hér
Hlakka til að ganga með þér
Jana

Framtíðarsjálfið þitt sem þig dreymir um verður ekki til seinna.Það mótast í litlum, mjúkum skrefum í dag. Ekki á morgun...
13/04/2026

Framtíðarsjálfið þitt sem þig dreymir um verður ekki til seinna.
Það mótast í litlum, mjúkum skrefum í dag. Ekki á morgun, ekki seinna.

Ég finn oft fyrir því að langa að vera, gera
mig langar… ég ætla að verða...

🦋Mig langar að hreyfa mig meira.
🦋Mig langar að næra mig betur.
🦋Mig langar að skapa.
🦋Mig langar að vera meira í tengingu við sjálfa mig.

Áður fyrr ýtti ég þessu oft frá mér eða einfaldlega hafði ekki trú á sjálfri mér
Hugsaði að ég myndi gera þetta seinna… þegar tími væri til.
Þegar ég væri tilbúin. Þegar ég væri orðin fullkomin. Þegar allt væri rólegra.
Áttaði mig ekki á því að dvelja í framtíðarsjálfinu alla daga, en ekki láta mig bara dreyma.

Þetta er samt ekki að dvelja í framtíðinni, heldur að gera það sem framtíðarsjálfið þitt væri að gera akkúrat núna.

Ég er að æfa mig...
að bregðast við þó að það sé bara lítið í einu.

🌱Kannski er það bara stuttur göngutúr. Sem verður að fjalli.
🌱Kannski er það að velja eina nærandi máltíð. Sem verður að betri heilsu.
🌱Kannski skrifa nokkrar línur. Sem verður að bók

Ekki fullkomið.

Vertu það í dag… sem þú hefur verið að bíða eftir.
Vertu það í dag… þó það sé bara í eitt andartak.
Vertu það í dag… án þess að útskýra þig.
Vertu það í dag… og leyfðu því að vera nóg.

Þú þarft ekki að bíða.
Þú mátt byrja þar sem þú ert.
kannski er það bara byrjunin á einhverju miklu dýpra.

✨ Vertu það í dag… og leyfðu því að vera nóg.

Stundum höldum við að við þurfum að gera eitthvað stórt og mikið til að líða betur. ☯️Nýja rútínu. Nýtt kerfi. Meiri aga...
06/03/2026

Stundum höldum við að við þurfum að gera eitthvað stórt og mikið til að líða betur. ☯️
Nýja rútínu. Nýtt kerfi. Meiri aga.
Þegar við lærum að staldra við í dagsins önn þá svarar taugakerfið okkur betur, það fer ekki í varnarviðbragðið. Lítil, mjúk meðvituð skref er öryggi fyrir taugakerfið. Taka innri pásu.
Settu nærandi ljós í hjarta þitt og vertu verandi fyrir þig, þannig nærðu að svara áreiti og streitu betur.

🦋Smá hlé.
🦋Smá athygli.
🦋Smá næring yfir daginn.

Hér eru 5 einfaldar venjur sem geta hjálpað líkamanum að finna meira jafnvægi 🫶

🫶Ég þarf ekki að flýta mér né vera komin lengra🫶Í líkamanum mínum býr styrkur sem hefur haldið mér alla leið hingað.Í an...
30/01/2026

🫶Ég þarf ekki að flýta mér né vera komin lengra🫶

Í líkamanum mínum býr styrkur sem hefur haldið mér alla leið hingað.
Í andardrættinum býr kyrrð sem róar óttann.
Í hjartanu býr viska sem leiðir mig áfram
Eitt nærandi skref í einu 👣

Það má hægja á - það er að hlusta
Það má hvílast - það er styrkur
Taugakerfið gefur eftir
Hér má ég vera ég - verandi fyrir mig 💗

Við gleymum oft að hlusta. Dagurinn heldur áfram, verkefnin hrúgast upp og líkaminn reynir að segja okkur eitthvað sem v...
18/11/2025

Við gleymum oft að hlusta. Dagurinn heldur áfram, verkefnin hrúgast upp og líkaminn reynir að segja okkur eitthvað sem við heyrum ekki alveg.

Þegar þú stoppar í andartakinu og setur athyglina inn á við þá byrjar eitthvað að breytast. Þú finnur betur fyrir þér. Þú finnur hvernig orkan er, hvað er spennt eða flækt. Hvað er það sem þú þarfnast ?

Líkami - hugur - hjarta 🫶

Þessi litla innri pása skapar rými. Rými til að bregðast meðvitað við, ekki í flýti. Rými til að draga úr streitu áður en hún festist í líkamanum. Rými til að hlusta á eigin sannleika.

Svo… ef þú myndir taka eina litla innri pásu akkúrat núna, anda inn og svo út… og sleppa aðeins takinu…
🧘‍♀️ Hvað myndir þú taka eftir núna? 🧘‍♀️

Það er í sjálfri hvíldinni sem endurnæringin byrjar 🫶 Að gefa eftir "allt sem þú þarft að gera"er hvíld. Komdu í nudd í ...
18/11/2025

Það er í sjálfri hvíldinni sem endurnæringin byrjar 🫶
Að gefa eftir "allt sem þú þarft að gera"er hvíld. Komdu í nudd í desember - Hlökkum til að taka á móti þér 💫
Bóka: https://noona.is/naerandi
Hægt að kaupa gjafabréf

Fyrirtæki þar sem okkar hugsjón er að sjá einstaklinginn vaxa á sinni heilsu vegferð. Okkar drifkraftur er að hver einstaklingur er einstakur.

Hvíldin er endurnýjun, í hvíldinni heyrum við hvað er að gerast hið innra. Hvíldin er allt sem er og allt sem verður.Hví...
24/09/2025

Hvíldin er endurnýjun, í hvíldinni heyrum við hvað er að gerast hið innra. Hvíldin er allt sem er og allt sem verður.
Hvíldin er að vera heima, sannleikurinn kemur heim í gegnum innri visku
hvílast hér og nú er nærandi
Andardrátturinn er andartakið, eina sem þú hefur

Taktu frá tíma í hvíld, vertu verandi fyrir þig

Komdu með í næstu göngu eða kíktu á næsta viðburð hjá Nærandi Líf
naerandilif.is eða fá upplýsingar: [email protected]

🫶 Taugakerfið + melting🫶Ég sá loksins mynstrið: Meltingaróþægindi verða verri þegar ég er undir miklu álagi og streitu. ...
16/09/2025

🫶 Taugakerfið + melting🫶

Ég sá loksins mynstrið: Meltingaróþægindi verða verri þegar ég er undir miklu álagi og streitu. Ég hélt fyrst að það væri maturinn en svo fattaði ég að það var taugakerfið mitt sem var í stanslausu streituviðbragði. Þegar ég lærði að róa taugakerfið, fór meltingin mín líka að róast.

🍎 Róleg melting: betri næringarupptaka 🍎

🧘‍♀️ Ég er að læra að það þarf ekki að „vinna sér inn“ hvíld. Innripása er mér mikilvæg.Þegar ég stoppa, anda og leyfi m...
28/08/2025

🧘‍♀️ Ég er að læra að það þarf ekki að „vinna sér inn“ hvíld. Innripása er mér mikilvæg.

Þegar ég stoppa, anda og leyfi mér að vera, þá finn ég hvað líkaminn og hjartað verða mýkri. 💫 Ég upplifi kyrrðina innra með mér.
Það er ótrúlegt hvernig taugakerfið okkar svarar þegar við sýnum okkur hvíld, mildi og traust.

Ég er nóg – og þú líka 🫶 Eigðu góðan dag 🌻

Nærðu líkama og sál til betri heilsu💛
01/07/2025

Nærðu líkama og sál til betri heilsu💛

Address

Hamraborg 1 4 Hæð
Kópavogur
105

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Nærandilíf posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share