Himnasæla

Himnasæla Englareiki - orkujöfnun -höfuðbeina-og spjaldhryggjarmeðferð - Body harmony - miðlun - Hef lokið 1.2.3.og 4.stigi í Höfuðbeina-og spjaldhryggjarmeðferð.

Ég heiti Ásta María og er Heilsunuddari frá Nuddskóla Íslands 1995 og meistari 1997. Ég hef unnið við nudd síðan ég útskrifaðist bæði á líkamsræktarstöðvum og sjálfstætt. Lauk 3 ára námi í Náttúrulækningum frá Heilsumeistaraskólanum í ágúst 2014. Hef lokið tveimur námskeiðum í Body Harmony sem er heilunaraðferð frá Don McFarland sem var Bandarískur kírópraktor meðal annars. Lærði heilun hjá Erlu S

tefánsdóttur

Helgarnámskeið í orkujöfnun hjá Jóhönnu Jónasar Brennan heilara. 2019

Heilunarnámskeið hjá Jónínu Viskaoggledi.is haust 2019

Englareiki 1&2 haust 2020 og 3&4 mars 2022 hjá Ölmu Hrannarsdóttur

Góðan og blessaðan daginn kæru öll.🥰Ég á lausan tíma í heilun næsta mánudag 10.ágúst kl.14.30✨️💖✨️
08/08/2026

Góðan og blessaðan daginn kæru öll.🥰
Ég á lausan tíma í heilun næsta mánudag 10.ágúst kl.14.30✨️💖✨️

06/08/2026

Ein sem sendi mér skilaboð eftir að ég sendi henni fjarheilun og hún fékk m.a. skilaboð að drekka meira vatn.
"Veistu. Þér var magnað. Fyrst fékk ég höfuðverk og svo fylltist ég af mikilli ró. Þegar ég stóð upp byrjaði ég á að fá mér vatn (merkilegt) núna er ég frekar dösuð en finn mikinn innri frið. Takk svo einlæglega fyrir að gefa þér tíma og senda mér þessa fallegu orku. Með einlægu þakklæti og kærleika 🙏💖🙏"

Góðan og blessaðan daginn.☀️🌸🌼Síðustu árin hef ég sent fjarheilun til þeirra sem vilja þiggja án gjalds. Það er velkomið...
30/07/2026

Góðan og blessaðan daginn.☀️🌸🌼
Síðustu árin hef ég sent fjarheilun til þeirra sem vilja þiggja án gjalds. Það er velkomið að senda mér skilaboð til að óska eftir fjarheilun. Fjarheilun getur verið mjög kröftug og ég hef alltaf fengið einhverja sýn eða skilaboð til viðkomandi.✨️🙏Eigið góðan dag kæru allir og munum að kærleikurinn er sterkasta aflið og með því að hugsa fallega til náungans kemur það margfalt til baka.🥰✨️💖

25/07/2026
23/06/2026

Góðan og blessaðan daginn🥰
Gott er að byrja daginn á að jarðtengja sig með rótum úr iljum niður í jörðina. Breiða svo út faðminn og þakka fyrir allt það góða sem er í lífi ykkar. Jafnvel líka það sem þið viljið fá inní líf ykkar. Þakka fyrir það eins og það sé raunverulega í lífi ykkar eins og t.d. góð heilsa. Bara ekki fara í egóið heldur sem sálin þín vill. Það er magnað hvað við getum raungert inní líf okkar með jákvæðum staðhæfingum. Þarf að gera í soldinn tíma, gott að gera daglega í 3 vikur. Endilega prófið sjálf. Eigið góðan dag í þakklæti.🙏🌼🌸🌼

19/06/2026

Góðan daginn kæru allir🥰🌹
Gott er að blómstra eins og rósin. Ein af fyrstu hugleiðslunum sem ég lærði var "Rósin" hjá Erlu Stefáns minni kæru. Hún sá orkustöðva litina öðruvísi en flest fræði kenndu, enda var hún sjáandi á blik mannsins og náttúruverur. Þegar hún teiknaði álfana og fleira í Hafnarfirði komu þau hjónin stundum í heimsókn.
Hennar rósaæfing var gul rós í hjartastað sem opnaðist meir og meir á útöndun þangað til við erum orðin að kjarna rósarinnar og yndisleg mjúk blöðin umlykja okkur og vernda.🌼
Eigið fallegan dag í faðmi rósarinnar.🌼

15/06/2026

Góðan daginn kæru þið sem lesið🥰
Mánudagur, ný vinnuvika hjá flestum, nýtt tungl með nýjum ásetningi. Í dag er gott að setjast niður og skrifa niður á blað hvaða nýtt þið viljið fá inn í líf ykkar, þarf ekki að vera stórt. En sá fræjum til nánustu framtíðar.
Eigið fallegan dag🥰
Sól í hjarta🌼Sól í sinni🌼

12/06/2026

Góðan daginn kæru þið, hugleiðing dagsins 🌼

Okkur líður best þegar við getum verið eins og vatnsdropi í ánni og flætt óhindrað og óhrædd með hinum vatnsdropunum og sameinast í fossinum og stokkið niður með gleði og fullviss um að bergið gefi okkur hugrekki og styrk.

Ljós inní daginn ykkar.✨️🩵

10/06/2026

Góðan fallegan daginn🌼
Í þau ca.30 ár sem ég vann við heilsunudd meðfram annari vinnu fann ég oft fyrir framliðnum með einstaklingnum og miðlaði. Með árunum hef ég mest miðlað fyrir fjölskyldu og vini. Sérstaklega fyrir eiginmanninn sem kynntist ekki föður sínum en hitti hann í örfá skipti. Mest hefur þó afi hans og nafni komið enda sterkt með honum.
Miðlunin hefur smátt og smátt verið að taka meira pláss. Ég var í þróunarhóp í nokkur ár áður en ég átti minn yngsta en fyrir 2-3 árum fór ég á einkanámskeið í miðlun hjá Berglindi miðli og svo um síðustu helgi var ég á miðilsnámskeiði hjá Ásthildi Sumarliða hjá sálarrannsóknafélagi ísl. og wow hvað ég átti að vera þar. Ég þarf líka að læra að setja mörk svo ágangurinn sé ekki of mikill, sérstaklega á kvöldin og ef ég er andvaka á nóttunni. Svo nú er það komið.😁 En mér finnst yndislegt að finna fyrir fjölskyldu og vinum sem farin eru þegar við á.
Þegar að mamma lá banaleguna fyrir tæpum 2 árum bað ég hugleiðsluvini mína að biðja fyrir mér og mömmu. Daginn eftir fann ég fyrir Einari á Einarsstöðum og hann sagðist vera hliðvörðurinn minn og bað mig að setjast niður á morgnana kl.9.30 og hugsa til hans. Eg fékk heilun og styrk frá honum og þetta gerði ég í 4-6 vikur.
Nú býð ég uppá miðlun og heilun þar sem ég miðla fyrst og svo leggst þú á bekk í heilun. Ég hef líka í nokkur ár sent fjarheilun og miðlun án gjalds fyrir þá sem þurfa🙏🌈
Nánari upplýsingar í skilaboðum.
Heilandi kærleikur inn í daginn þinn🩷

09/06/2026

💚 Njóttu dagsins í dag 🍀
~ANNAMARIA~

Address

þverholti 2
Mosfellsbær
270

Telephone

+3548614561

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Himnasæla posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Himnasæla:

Shortcuts

Share