Reykjalundur endurhæfing ehf

Reykjalundur endurhæfing ehf Stærsta endurhæfingarmiðstöð á Íslandi
270 Mosfellsbær, 00354 585-2000
[email protected]

Reykjalundur birtir allar athugasemdir og spurningar ef efnið tengist starfsemi Reykjalundar og er sett fram á málefnalegan hátt. Hver sá sem skrifar ummæli á síðu Reykjalundar gerir það á eigin ábyrgð. Reykjalundur áskilur sér rétt til þess að fjarlægja efni og/eða höfund efnis af síðunni ef:
• einstaklingar eru nafngreindir
• hægt er að rekja efnið auðveldlega til einstaklings eða hópa
• efnið

er meiðandi, niðrandi eða óviðeigandi
• ásakanir um refsiverða háttsemi eru sett fram
• hvatt er til afbrota
Bent er á ábendingarhnapp á heimasíðu Reykjalundar þar sem tekið er við öllum ábendingum, athugasemdum, spurningum og að sjálfsögðu hrósi líka. Vinsamlegast athugið að ekki er fylgst með þessari síðu eða innleggjum sem sett eru á hana allan sólarhringinn en reynt er að bregðast við athugasemdum eins fljótt og auðið er.

Sundlaugin opnuð á ný eftir umfangsmiklar endurbætur.Nú hafa sundlaugarnar á Reykjalundi verið opnaðar á ný eftir umfang...
03/09/2026

Sundlaugin opnuð á ný eftir umfangsmiklar endurbætur.

Nú hafa sundlaugarnar á Reykjalundi verið opnaðar á ný eftir umfangsmiklar endurbætur sem staðið hafa yfir undanfarna mánuði.

Framkvæmdirnar voru nauðsynlegur liður í viðhaldi og endurnýjun til að tryggja áfram opnun lauganna en jafnframt nauðsynlegur liður í því að skapa örugga og góða aðstöðu fyrir sjúklinga og starfsfólk.

Báðar sundlaugar Reykjalundar hafa verið endurnýjaðar. Einnig hafa ítarleg þrif á öllu svæðinu farið fram og er aðstaðan nú einstaklega snyrtileg og glæsileg.

Það er sannarlega ánægjulegt að sjá hversu vel hefur tekist til. Laugarnar hafa fengið nýtt líf og er nú glerfínar og tilbúnar á ný til að taka á móti sjúklingum sem þiggja meðferð hér á Reykjalundi.

Við þökkum öllum fyrir þolinmæðina meðan á framkvæmdunum stóð og hlökkum til að njóta endurnýjaðrar aðstöðu með sjúklingum og starfsfólki.

18/08/2026

Hleypur fyrir Reykjalundur endurhæfing

13/08/2026

Að heita á Reykjalund í Reykjavíkurmaraþoninu

Reykjalundur tekur þátt í góðgerðarátaki Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka og nú gefst öllum tækifæri til að styðja starfið með því að heita á þá sem hlaupa fyrir Reykjalund.

Framlög til Reykjalundar nýtast til verkefna sem stuðla að bættri aðstöðu og auknum lífsgæðum þeirra sem njóta þjónustu Reykjalundar. Stuðningur almennings skiptir þar miklu máli og gerir félaginu kleift að leggja sitt af mörkum til áframhaldandi uppbyggingar.

Við viljum jafnframt þakka öllum þeim sem þegar hafa heitið á Reykjalund fyrir hlýhug og stuðning. Hvert framlag skiptir máli og hjálpar okkur að halda áfram mikilvægu starfi.

Kærar þakkir fyrir stuðninginn.

Hægt er að heita á Reykjalund á söfnunarsíðu Reykjavíkurmaraþons
👉 https://www.rmi.is/hlaupastyrkur/godgerdamal/527-reykjalundur-endurhaefing

Framkvæmdir við sundlaug og húsnæði Reykjalundar Nokkrar mikilvægar endurbætur standa nú yfir á Reykjalundi. Unnið er að...
01/07/2026

Framkvæmdir við sundlaug og húsnæði Reykjalundar

Nokkrar mikilvægar endurbætur standa nú yfir á Reykjalundi. Unnið er að umfangsmiklum viðgerðum á sundlaugunum, en 26 ár eru síðan þær voru teknar í notkun. Skipt er um dúk sem hjúpar laugarnar að innanverðu og gert við sprungur í forðatanki sundlauganna. Lokar og lagnir, sem leka í lagnakjallara undir sundlaugunum, verða endurnýjaðar og skipt verður um síusand í hreinsibúnaði lauganna. Nýjar flísar verða lagðar við sundlaugarbarmana og lýsing ofan við laugarnar endurnýjuð. Framkvæmdirnar eru liður í viðhaldi og endurnýjun aðstöðunnar. Áætlað er að verkinu ljúki í fyrstu viku ágústmánaðar.

Jafnframt eru hafnar framkvæmdir við endurbætur og stækkun á setustofu á þriðju hæð, B-gangi Reykjalundar. Skipt verður um framhlið (gluggafront) frá þriðju hæð og niður á jarðhæð. Markmið framkvæmdanna er að bæta aðstöðu og ásýnd húsnæðisins. Áætlað er að verkinu ljúki í nóvember.

Við þökkum fyrir auðsýndan skilning á meðan framkvæmdum stendur og hlökkum til að taka í notkun endurnýjaða aðstöðu.

Nokkar myndir frá framkvæmdunum.

Vinnuskóli Mosfellsbæjar leggur sitt af mörkum á Reykjalundi.Ungmenni úr Vinnuskóla Mosfellsbæjar hafa undanfarna daga u...
26/06/2026

Vinnuskóli Mosfellsbæjar leggur sitt af mörkum á Reykjalundi.

Ungmenni úr Vinnuskóla Mosfellsbæjar hafa undanfarna daga unnið að því að fegra og snyrta umhverfi Reykjalundar. Þrátt fyrir rysjótt veður og blautan dag hafa þau sýnt einstakan dugnað, vinnugleði og jákvætt viðhorf.

Það er okkur á Reykjalundi mikil ánægja að hafa þetta kraftmikla unga fólk í kringum okkur. Nærvera þeirra og góði andinn sem þau færa með sér veita bæði gleði og líf í daglegt starf.

Reykjalundur er afar þakklátur Mosfellsbæ fyrir þetta mikilvæga framlag. Fallegt og vel hirt umhverfi skiptir miklu máli fyrir starfsfólk, skjólstæðinga og gesti, en svæðið er einnig vinsælt útivistarsvæði fyrir Mosfellinga. Í kringum Reykjalund liggja fjölmargar skemmtilegar gönguleiðir sem njóta mikilla vinsælda allt árið um kring.

Við kunnum vel að meta það góða samstarf sem Reykjalundur á við Mosfellsbæ og erum þakklát fyrir þann stuðning sem bæjarfélagið sýnir starfsemi okkar og nærumhverfi.

Við sendum Mosfellsbæ og starfsfólki Vinnuskóla Mosfellsbæjar bestu þakkir fyrir vel unnin störf.

Myndir af kátum krökkum frá Vinnuskóla Mosfellsbæjar.

Gjöf til Reykjalundar í þakklætisskyniPétur Ottesen færði Reykjalundi nýtt sjúkrarúm að gjöf. Með gjöfinni fylgdi eftirf...
25/06/2026

Gjöf til Reykjalundar í þakklætisskyni

Pétur Ottesen færði Reykjalundi nýtt sjúkrarúm að gjöf. Með gjöfinni fylgdi eftirfarandi kveðja frá Pétri:

„Ég heiti Pétur Ottesen og fékk blóðþurrðar slag í júli 2024, naut endurhæfingar á Reykjalundi frá september 2025 til áramóta. Þar lærði ég að nýta mér þau verkfæri sem að mér voru rétt og er enn á góðum batavegi

Við andlát móður minnar, Fanneyjar Eddu Pétursdóttir skapaðist tækifæri til að gefa til baka til Reykjalundar með því að afhenda ykkur sjúkrarúm móður minnar með þakklæti fyrir tímann hjá ykkur

Það er mér bæði ánægja og þakklæti að geta lagt mitt af mörkum og ég vona að rúmið muni nýtast öðrum vel á þeirra vegferð til bata, rétt eins og ég fékk sjálfur svo mikilvæga aðstoð á minni vegferð.“

Kær kveðja,
Pétur Ottesen

Reykjalundur þakkar Pétri innilega fyrir veglega gjöf og óskar honum áframhaldandi góðs bata.

Á myndinni er Pétur Ottesen og dóttir hans við afhendingu sjúkrarúms til Reykjalundar.

Vegleg gjöf til Heilsuþjálfunar Reykjalundar Heilsuþjálfun Reykjalundar hefur fengið veglega gjöf frá Önnu Maríu Einarsd...
24/06/2026

Vegleg gjöf til Heilsuþjálfunar Reykjalundar

Heilsuþjálfun Reykjalundar hefur fengið veglega gjöf frá Önnu Maríu Einarsdóttur sem færði starfseminni tvær frisbígolfkörfur og átta diska.

Gjöfin hefur þegar komið að góðum notum og þátttakendur tekið henni fagnandi. Frisbígolf er skemmtileg og aðgengileg hreyfing sem sameinar útiveru, hreyfingu og félagslega samveru.

Við færum Önnu Maríu innilegar þakkir fyrir stuðninginn og höfðinglega gjöf sem mun nýtast vel í starfsemi Heilsuþjálfunar.

Áhrif kulda við göngu utandyra á blóðþrýsting, hjartslátt og mæði hjá einstaklingum með kransæðasjúkdóm: Forkönnunarrann...
18/06/2026

Áhrif kulda við göngu utandyra á blóðþrýsting, hjartslátt og mæði hjá einstaklingum með kransæðasjúkdóm: Forkönnunarrannsókn

Útiganga er ein einfaldasta og árangursríkasta þjálfunaraðferðin í hjartaendurhæfingu og er stunduð allan ársins hring á Reykjalundi. Að vetri til fylgir útigöngu þó kuldaáreiti sem getur haft áhrif á hjarta- og æðakerfið, sérstaklega hjá einstaklingum með kransæðasjúkdóm. Hingað til hafa rannsóknir á áhrifum kulda á þennan hóp verið takmarkaðar.

Í þessari forkönnunarrannsókn var leitast við að varpa ljósi á áhrif kulda við raunverulega gönguþjálfun utandyra að vetrarlagi, með samanburði við sambærilega áreynslu innandyra. Markmiðið var að meta svörun líkamans, meðal annars hvað varðar blóðþrýsting, hjartslátt, mæði og möguleg óþægindi, hjá einstaklingum með stöðugan kransæðasjúkdóm í hjartaendurhæfingu á Reykjalundi.

Grein eftir Telmu Sigþrúði Guðbjarnadóttur 6. árs læknanemi 2024-25 kom út í tímaritinu Læknaneminn sem fjallar um þessa rannsókn. Hún vann þessa rannsókn hér á Reykjalundi ásamt Karli Kristjánssyni lækni, Ingu S Þráinsdóttur lækni og Mörtu Guðjónsdóttir lífeðlisfræðing.

Útiganga er ein einfaldasta og árangursríkasta þjálfunaraðferðin í hjartaendurhæfingu og er stunduð allan ársins hring á Reykjalundi. Að vetri til fylgir útigöngu þó kuldaáreiti sem getur haft áhrif á hjarta- og æðakerfið, sérstaklega hjá einstaklingum með kransæðasjúkd....

Takk Helga Björg Steinþórdóttir fyrir að þitt framlag.
10/06/2026

Takk Helga Björg Steinþórdóttir fyrir að þitt framlag.

Hleypur fyrir Reykjalundur endurhæfing

09/06/2026

Address

Reykjalundur
Mosfellsbær
270

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:30
Tuesday 08:00 - 16:30
Wednesday 08:00 - 16:30
Thursday 08:00 - 16:30
Friday 08:00 - 16:00

Telephone

+3545852000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Reykjalundur endurhæfing ehf posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Reykjalundur endurhæfing ehf:

Shortcuts

Share