31/08/2026
Við höfum hækkað aldursbilið og ákveðið að bjóða öllum á miðstigi á Sporthiit unglinga námskeiðin hjá okkur.
5-7. bekkur velkomin :)
Á þessu námskeiði er boðið uppá skemmtilega líkamsrækt, kennslu á grunnatriðum í styrktarþjálfun, rétta líkamsbeitingu og uppbyggingu til framtíðar á sjálfstrausti og getu til að iðka frekari líkamsrækt.
Æfingakerfið er gert skemmtilegt þannig að allir finni sig í hverri æfingu. Kennsla á réttri líkamsbeitingu er mjög mikilvæg. Með auknum styrk á réttum vöðvum hjálpum við unglingum að tileinka sér betri líkamsbeitingu og vita mikilvægi réttrar líkamsbeitingar.
Með því að kenna krökkum að umgangast líkamsrækt og kenna þeim undirstöður styrktar æfinga aukum við sjálfstraust þeirra til framtíðar í leik og starfi.
Hægt er að ráðstafa frístundarstyrk fyrir námskeiðið
Sporthúsið býður upp á eitt mesta úrval námskeiða og hóptíma.
Crossfit - Unglingaþjálfu