03/09/2026
Stífar mjaðmir? PRÓFAÐU ÞETTA🦵🏻
Það eina sem þú þarft er smá gólf pláss og 2 mínútur🕘
Fylgdu mér eftir og endilega segðu mér hvernig gekk ⬇️💬
Hérna erum við að vinna á móti kyrrsetu og langvarandi stöðum sem geta orsakað óþægindi og stífleika í mjöðmum🪑
Það sem við erum að hreyfa og liðka
🦵🏻Mjaðmaliðurinn
➡️ Til þess að liðurinn fái sem mesta næringu og blóðflæði er mikilvægt að hreyfa hann reglulega ÚT FYRIR kyrrsetuna og aðrar daglegar langvarandi stöður.
🍖 Rassvöðvar (Gluteues medius og maximus)
➡️ Taugakerfið stýrir vöðvum og hreyfigetu, og ef við venjum líkamann á sömu langvarandi stöðurnar þá verður það nýja “normið” fyrir líkamann. Þ.e.a.s við stífnum í vöðvum og hægt og rólega töpum hreyfanleikanum og hreyfifærninni.
Þess vegna er mikilvægt að hreyfa vöðvana okkar úr styttingu í lengingu reglulega.
Ásamt því er líka mikilvægt að virkja og spenna vöðvana til þess að viðhalda og byggja upp styrk💪🏻
Og þetta getur haft jákvæð áhrif á Miðtaugakerfið🧠
💪🏻 Regluleg og stýrð hreyfing styður heilbrigða heilastarfsemi og viðheldur heilanum heilbrigðari þegar við eldumst.