10/05/2026
Akthelia hélt vel sóttan kynningarfund í vikunni þar sem m.a. var fjallað um áætlanir félagsins í klínískum rannsóknum.
Sérstakur gestur fundarins var Dr. Markus Gerhard, læknir og prófessor við Tækniháskólann í München í Þýskalandi. Hann á jafnframt sæti í vísindaráði Akthelia.
Lyfjavísinum AKT-011 er ætlað að verja slímhúð í meltingarvegi gegn skemmdum sem geta orðið í krabbameinsmeðferð og eru mjög algengir fylgikvillar meðferða.
Íslenska lyfjaþróunarfyrirtækið Akthelia Pharmaceutical þróar frumlyf gegn alvarlegum fylgikvillum krabbameinsmeðferðar.