11/12/2025
Heimurinn er á hvolfi. Við skyljum sem skyljum.
En hvað getum við gert?
Èg hef varið èg veit ekki hversu miklum klukkustundum s.l. mánuðina í að kynna mèr hvað raunverulega er um að vera í þessum heimi sem við búum í. Því meira sem èg les, hlusta & skoða, því minna veit èg í raun.
En eitt veit èg þó. Við erum ekki á góðum stað og èg velti því fyrir mèr hvernig við ætlum að snúa þessu við?💗
Til þess að skapa eitthvað nýtt og betra, þá er ekki málið að velta sèr upp úr “vandamálunum” endalaust, það kemur engin lausn með því er það?
Við höfum öll misjöfnum verkefnum að sinna samt, og sumir eiga vera í því áfram að vekja okkar hin til umhugsunar um heimsmálin. Þakklàt þeim sem eru að sinna þessum málum!🫶🏼
En èg finn að mín köllun er ekki í því að benda á allt þetta slæma í heimsmálunum.
☀️Jú nú langar mig til þess að fara setja athygli mína yfir á allt það góða, allt það jákvæða, og að minna okkur öll á hvað við getum gert til þess að láta okkur sjálfum líða betur.
☀️Í dag ætla èg t.d. að hvíla mig á frèttamiðlum og hljópvarps hlustunum. Hvíla mig á símahangsinu líka og blessaða kommentakerfinu. Skapa í staðinn í meiri ró og frið hèr heima, og að njóta þess að heyra í eigin hugsunum. Setja athyglina á það að virkilega sjá fólkið mitt, og annað fólk líka sem èg hitti á förnum vegi í gegnum daginn minn. Brosa til spegilmyndarinnar í speglinum og til allra sem á vegi mínum verða í dag.
☀️Hugmynd! Eigum við kannski öll að hvíla okkur bara frá frèttamiðlum og öðru neikvæðu yfir jólatímann?🎄 Einbeita okkur að hvort öðru í staðinn, vera virk í samverustundum og að gera skemmtilega hluti yfir hátíðirnar? Þetta er t.d. ein góð leið til þess að verða heilbrigðari og heilli. Tengsl við annað fólk & gleðistundir, þær gefa okkur meira en okkur grunar!
Knús & kærleikur út í kosmósið,
Dóra💗