02/09/2026
Kæra samfélag.
Ég stofnaði þessa síðu fyrir nokkrum árum og hef fylgst með henni vaxa meðfram því að áhugi fólks á mætti jurtaríkisins vex. Ég hef sjálf verið í pásu sem grasalæknir vegna barneigna og annarra verkefna, en er nú að snúa mér aftur að þessari fallegu og gefandi vinnu. Það er svo gaman að fá að eiga djúpar samræður við fólk, hvort sem við erum að skoða líkamleg, andleg, hegðunar eða hugsana tengd “einkenni”, og geta svo sent viðkomandi heim með jurtamixtúru sem er sérstaklega hönnuð fyrir hvern og einn.
Það sem hefur breyst frá því að ég tók fyrst að starfa sem grasalæknir er að jurtirnar gegna nú meira stuðnings hlutverki en áður, þar sem ég hef bætt við mig mikilli þekkingu í samtalsmeðferð, og er mikla einkenna úrlausn að finna aðeins með því. Ég veit þó ekkert betra en að fá að taka eitthvað með sér heim sem getur stutt við þig í átt að heilindum á hverjum degi.
Eins og ég sé jurtirnar þá eru þær vinir okkar, kennarar, speglar og læknar. Svo lengi sem við berum þá virðingu fyrir þeim að nota þær ekki eins og lyf eða plástur, heldur tökum líka á móti áhrifunum sem bæði tilla okkur í átt að meiri skýrleika á rót vandans, og virkja náttúrulegu heilunarkerfi líkamans. Það hlýar mér líka í hjartanu að geta sent fólk heim með eitthvað sem ég hef lagt minn kærleika og góðvild í.
Hvort sem þú ert að eiga við sóreasis, kvíða, erfiðleika í sambandinu, magavesen, sjálfsónæmis vanda, síþreytu.. eða eitthvað annað, þá ertu hjartanlega velkomin/nn í tíma til mín.
Ég er opin fyrir bókunum, allt er velkomið, ekkert er of ómerkilegt, ekkert er of alvarlegt.
Bókaðu frítt símtal hér og við tökum stöðuna. https://calendly.com/ingeborg-jardviska/30min
Kær kveðja,
Ingeborg grasalæknir