Samkennd Heilsusetur

Directions Website

Samkennd Heilsusetur Fagaðilar Samkenndar hafa góða þekkingu á sínu sviði og bjóða upp á fjölbreytta þjónustu Miðast val á meðferðarformi eftir þörfum og vanda skjólstæðings.

Hjá okkur starfa atferlisfræðingur, faglegur handleiðari, heilari, félagsráðgjafi, fjölskyldu- og pararáðgjafar, markþjálfar, sálfræðingar, sálmeðferðrafræðingur, jógakennarar, heilari, nuddari, prestur ofl. Sú þjónusta sem boðið er upp á er m.a einstaklingsviðtöl, fjölskyldu-, para- og hjónaráðgjöf, hópmeðferðir, námskeið, fyrirlestrar, hugleiðslur, slökun, dáleiðsla, og Yoga námskeið, bandvefslosunartímar, mjúk leikfimi og paranudd námskeið. Undir hatti Samkenndar er fjölbreytt þjónusta vel menntaðra fagaðila og sérfræðinga. Hver fagaðili byggir meðferðir sínar á árangursmiðuðum og gagnreyndum aðferðum út frá sinni fræðigrein. Við sinnum bæði einstaklingum, pörum, fyrirtækjum og hópum. Hægt að sækja þjónustu okkar að Tunguhálsi 19 og í gegnum fjar-þjónustu ef það hentar betur. Hægt er að nálgast meiri upplýsingar í gegnum netfangið [email protected] og inn á vefsíðunni samkennd.is

Ný vika er handan við hornið.Gefðu þér smá stund til að líta til baka.Hvað gaf þér orku þessa vikuna?Hvað tók orku frá þ...
18/10/2026

Ný vika er handan við hornið.

Gefðu þér smá stund til að líta til baka.

Hvað gaf þér orku þessa vikuna?
Hvað tók orku frá þér?
Hvað viltu taka með þér inn í nýja viku, og hverju má sleppa?

—

A new week is around the corner.

Take a moment to look back.

What gave you energy this week?
What drained it?
What do you want to carry into the new week, and what can you leave behind?

Farðu út í tíu mínútur í dag, jafnvel þótt veðrið sé ekki upp á sitt besta.Taktu eftir því sem þú sérð, heyrir og finnur...
17/10/2026

Farðu út í tíu mínútur í dag, jafnvel þótt veðrið sé ekki upp á sitt besta.

Taktu eftir því sem þú sérð, heyrir og finnur. Kalda loftið á kinnunum. Hljóðið í vindinum. Litina í haustlaufunum.

Náttúran þarf ekkert frá þér. Þú mátt bara vera.

—

Step outside for ten minutes today, even if the weather isn't at its best.

Notice what you see, hear and feel. The cold air on your cheeks. The sound of the wind. The colours of the autumn leaves.

Nature needs nothing from you. You can simply be.

Hvíld er ekki verðlaun sem þú þarft að vinna þér inn.Hún er hluti af því að vera manneskja. Taugakerfið þarf tíma til að...
16/10/2026

Hvíld er ekki verðlaun sem þú þarft að vinna þér inn.

Hún er hluti af því að vera manneskja. Taugakerfið þarf tíma til að róast, líkaminn til að jafna sig og hugurinn þarf rými.

Hvernig getur þú gefið þér hvíld um helgina, án þess að þurfa að réttlæta hana?

—

Rest isn't a reward you have to earn.

It's part of being human. The nervous system needs time to settle, the body needs time to recover, and the mind needs space.

How can you give yourself some rest this weekend, without needing to justify it?

Í dag, 15. október, er alþjóðlegur minningardagur um missi á meðgöngu og barnsmissi.Við hugsum hlýtt til allra foreldra ...
15/10/2026

Í dag, 15. október, er alþjóðlegur minningardagur um missi á meðgöngu og barnsmissi.

Við hugsum hlýtt til allra foreldra og aðstandenda sem bera þessa sorg, hvort sem missirinn er nýr eða langt er um liðið.

Sorgin á sér engin tímamörk og hún þarf ekki að vera falin.

Gleym mér ei heldur minningarstund í dag og henni verður einnig streymt á Facebook. 🤍

—

Today, October 15, is the international day of remembrance for pregnancy and infant loss.

We hold all parents and families carrying this grief in our thoughts, whether the loss is recent or long ago.

Grief has no timeline, and it doesn't need to be hidden.

Gleym mér ei is holding a remembrance gathering today, which will also be streamed on Facebook. 🤍

Vinnustofa um sorgarvinnu & hvernig nálgun Samkenndarmiðaðar Meðferðar (Compassion focused Therapy, CFT) & verkfæri henn...
14/10/2026

Vinnustofa um sorgarvinnu & hvernig nálgun Samkenndarmiðaðar Meðferðar (Compassion focused Therapy, CFT) & verkfæri hennar samþættist þeirri vinnu vel.

Fyrir hvern? Hentar sérstaklega vel heilbrigðisstarfsfólki sem sinnir samtalsmeðferð s.s. félagsráðgjöfum, hjúkrunarfræðingum og sálfræðingum sem vilja dýpka þekkingu sína, efla faglega færni & öðlast aukið öryggi í vinnu með fólki sem upplifir sorg & missi.

CFT og verkfæri hennar samþættast vel öðrum meðferðarformum og er góð viðbót þegar unnið er með sorgarvinnu, sjálfsgagnrýni og skömm.

Vinnistofan er fyrir byrjendur sem og lengra komna.

Markmið vinnustofunnar er að veita:

*Þekkingu á ólíkum tegundum missis og sorgar.
*Færni í að greina sorg frá öðrum geðrænum vanda, svo sem þunglyndi, kvíða, áfallastreituröskun og langvinnri sorg.
*Skilning á persónulegum og félagslegum þáttum sorgar.
*Jafnframt verður fjallað um mikilvægi sjálfsiðkunar meðferðaraðila sem leið til að efla þann samkenndarramma sem er góður grundvöllur sorgarmeðferðar með skjólstæðingum sem upplifa verulegan missi í lífi sínu
* Aðferðir CFT við sorg vegna missis sem tengist ekki dauðsfalli.
*Þekking á því hvernig samkennd getur aukið sjálfbærni í aðstæðum þar sem sorgin er langvinn, mikil og/eða einstaklega erfið.
*Kynning á grunnstoðum og verkfærum CFT í sorgarvinnu.

Í fjórum vikulegum lotum tvo tíma í senn munu þátttakendur fá fræðslu um nýjustu rannsóknir, taka þátt í upplifunar/reynsluæfingum og hugleiðandi iðkun til að dýpka bæði skilning og meðferðarfærni.

Leiðbeinandi: Anna Sigurðardóttir er sérfræðingur í klínískri sálfræði fullorðinna, hefur sérhæft sig í Hugrænni atferlismeðferð (CBT) og Samkenndarmiðaðri meðferð (CFT). Jafnframt hefur hún góða reynslu af notkun og kennslu núvitundar (Mindfulness), og ACT (Acceptance and Commitment Therapy). Hún er eigandi og framkvæmdastýra Samkenndar Heilsuseturs. Anna sinnir samtalsmeðferð og handleiðslu fagfólks úr ýmsum starfsstéttum. Hægt er að lesa meira um menntun og starfsreynslu Önnu hér https://samkennd.is/teymid/anna/

Skráningarhlekkur: https://forms.gle/PEJaK8fhvKbKDMNj7

Ef frekari upplýsinga er óskað er hægt að senda fyrirspurn á netfangið [email protected]

Hvernig talar þú við sjálfa/n/t þig þegar eitthvað fer úrskeiðis?Myndir þú tala svona við góðan vin?Samkennd í eigin gar...
14/10/2026

Hvernig talar þú við sjálfa/n/t þig þegar eitthvað fer úrskeiðis?

Myndir þú tala svona við góðan vin?

Samkennd í eigin garð snýst ekki um að afsaka allt eða lækka kröfurnar. Hún snýst um að mæta sjálfum sér með sömu hlýju og við sýnum öðrum.

Prófaðu í dag að segja við þig það sem þú myndir segja við vin í sömu stöðu.

—

How do you speak to yourself when something goes wrong?

Would you speak to a good friend that way?

Self-compassion isn't about excusing everything or lowering your standards. It's about meeting yourself with the same warmth you'd offer others.

Today, try saying to yourself what you'd say to a friend in the same situation.

Staldraðu við í eina mínútu.Hvar í líkamanum finnur þú fyrir deginum hingað til? Í öxlunum? Í kjálkanum? Í maganum?Þú þa...
13/10/2026

Staldraðu við í eina mínútu.

Hvar í líkamanum finnur þú fyrir deginum hingað til? Í öxlunum? Í kjálkanum? Í maganum?

Þú þarft ekki að laga neitt. Leggðu bara höndina þangað og andaðu nokkrum sinnum hægt.

Líkaminn segir okkur oft hvernig okkur líður áður en hugurinn nær að orða það.

—

Pause for one minute.

Where in your body do you feel the day so far? Your shoulders? Your jaw? Your belly?

You don't need to fix anything. Just rest your hand there and take a few slow breaths.

The body often tells us how we feel before the mind finds the words.

12/10/2026

Hafrún Kristjánsdóttir, sálfræðingur, prófessor og deildarforseti við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík, var til viðtals hjá RÚV nýverið þar sem fjallað var um íþróttaiðkun barna.

"Hafrún segir það hennar ósk að íþróttir barna yngri en tólf ára séu fyrst og fremst skemmtun. Börnum sé kennt að hreyfa sig, hafa gaman og að ekki verði mikil áhersla á keppni."

🔗 Hlekkur á viðtalið er í athugasemd.

Haustið minnir okkur á að allt í náttúrunni á sinn takt. Trén reyna ekki að halda í laufin. Þau sleppa takinu þegar tími...
12/10/2026

Haustið minnir okkur á að allt í náttúrunni á sinn takt. Trén reyna ekki að halda í laufin. Þau sleppa takinu þegar tíminn er kominn og safna kröftum fyrir það sem kemur.

Hverju mætti þú sleppa takinu á þessa vikuna? Kannski verkefni, kröfu eða væntingu sem er orðin of þung.

Það þarf ekki að vera stórt. Lítið rými getur skipt miklu máli.

—

Autumn reminds us that everything in nature has its own rhythm. The trees don't cling to their leaves. They let go when the time comes and gather strength for what's next.

What could you let go of this week? Maybe a task, a demand or an expectation that has grown too heavy.

It doesn't have to be big. A little space can make a big difference.

11/10/2026

Stundum tökum við eftir breytingum og reynum oft strax að ákveða hvað þær þýða.

Var þetta betra?
Var þetta verra?
Er ég að taka framförum eða er mér að fara aftur?
Ætti ég að halda þessu áfram?

En stundum er alveg nóg að taka einfaldlega bara eftir að eitthvað var öðruvísi.

Kannski brástu öðruvísi við einhverju sem þú þekkir vel.

Kannski hafðirðu meiri þörf fyrir að fá að vera í friði en venjulega.

Kannski hafðirðu meiri orku á ákveðnum tíma dags.

Kannski var eitthvað sem pirrar þig yfirleitt ekki að angra þig.

Kannski var eitthvað sem þú hefur yfirleitt gaman af ekki alveg eins ánægjulegt og venjulega.

Kannski hafði vikan sjálf einfaldlega einhvern annan blæ.

Þú þarft ekki endilega að útskýra það strax.

Áður en þú lýkur þessum degi skaltu spyrja þig:

Hvað er öðruvísi núna?

Ekki betra. Ekki verra.

Bara öðruvísi.

Address

Tunguhálsi 19
Reykjavík
110

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Samkennd Heilsusetur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share