Sóltún Reykjavík

Directions Website Contact the business

Sóltún Reykjavík Sóltún heilbrigðisþjónusta starfar á sviði velferðarþjónustu fyrir aldraða á Íslandi

Alþjóðlegi handþvottadagurinn er í dag!Áður en þú heimsækir íbúa á hjúkrunarheimili skaltu staldra við og þvo þér um hen...
15/10/2026

Alþjóðlegi handþvottadagurinn er í dag!

Áður en þú heimsækir íbúa á hjúkrunarheimili skaltu staldra við og þvo þér um hendurnar.

Það tekur aðeins 20 sekúndur en getur skipt miklu máli. Íbúar á hjúkrunarheimilum eru oft viðkvæmari fyrir sýkingum og því geta einföld kvef eða magakveisur orðið alvarleg veikindi hjá þeim.

Hreinar hendur eru ein einfaldasta og öflugasta vörnin sem við höfum. Þvoið hendurnar og notið svo handspritt við komu á heimilið. Geymið heimsóknir ef þið eruð slöpp eða með einkenni veikinda.

Hjálpumst að við að verja fólkið okkar💛

Hressir nemendur úr Verslunarskóla Íslands kíktu í heimsókn í viku einmanaleikans í síðustu viku, hlaðin bingóvinningum,...
12/10/2026

Hressir nemendur úr Verslunarskóla Íslands kíktu í heimsókn í viku einmanaleikans í síðustu viku, hlaðin bingóvinningum, og héldu skemmtilegt bingó fyrir íbúa Sóltúns í Reykjavík. Krakkarnir fengu hjálp við bingóstjórnina frá einni 6 ára starfsdagsdömu sem var í vinnunni með mömmu. Ótrúlega skemmtilegt framtak hjá þessum flottu krökkum og við þökkum þeim kærlega fyrir heimsóknina! 💛

Gulum september er lokið en í septembermánuði var sett upp stöð þar sem hægt var að skilja eftir góð skilaboð til náunga...
08/10/2026

Gulum september er lokið en í septembermánuði var sett upp stöð þar sem hægt var að skilja eftir góð skilaboð til náungans. Það er skemmtilegt að renna yfir skilaboðin, sérstaklega kveðjurnar til frábæra starfsfólksins okkar🙂👏

Vika einmanaleikans hefst í dag.Vika einmanaleikans er vitundarvakning Kvenfélagasambands Íslands gegn einsemd og einman...
05/10/2026

Vika einmanaleikans hefst í dag.
Vika einmanaleikans er vitundarvakning Kvenfélagasambands Íslands gegn einsemd og einmanaleika sem við finnum öll fyrir einhvern tímann á lífsleiðinni.
Hægt er finna ýmsar upplýsingar á vefsíðu Viku einmanaleikans og viðburðardagskrá fyrir vikuna. Einnig er skemmtilegt bingóspjald á vefsíðunni sem er með hugmyndir af hlutum sem er hægt að gera til að rjúfa einsemdina💛

Verkefninu er ætlað að opna á umræðu um einmanaleika í samfélaginu, upplýsa almenning um orsakir og afleiðingar, hvetja til aðgerða og efla samtakamátt í þjóðfélaginu gegn einmanaleika.

Í dag fögnum við fólkinu sem hefur mótað samfélagið okkar því í dag er Alþjóðadagur aldraðra💛Í tilefni dagsins hvetur að...
01/10/2026

Í dag fögnum við fólkinu sem hefur mótað samfélagið okkar því í dag er Alþjóðadagur aldraðra💛
Í tilefni dagsins hvetur aðalritari Sameinuðu þjóðanna til samstöðu milli kynslóða og til þess að langt líf sé líka gott líf, með valfrelsi, öryggi og reisn.

Fólk lifir í dag lengur en nokkru sinni fyrr og það kallar á fjölbreytta þjónustu sem mætir fólki þar sem það er. Það er einmitt það sem við vinnum að alla daga hjá Sóltúni, að veita eldra fólki þá þjónustu sem það þarf til að lifa góðu lífi💛

www.soltun.is

Nýsköpun í uppbyggingu hjúkrunarheimila og spennandi tímar framundan!💛
16/09/2026

Nýsköpun í uppbyggingu hjúkrunarheimila og spennandi tímar framundan!💛

Nýtt hjúkrunarheimili rís með ógnarhraða við Hamranes í Hafnarfirði. Fullinnréttuðum einingum verður raðað saman og 99 íbúar flytja inn innan nokkurra mánaða.

15/09/2026

Laus störf Sóltúni heilbrigðisþjónustu

Í gær kvöddum við Önnu Birnu Jensdóttur, sem hefur nú látið af störfum hjá Sóltúni eftir farsælan og áhrifamikinn starfs...
11/09/2026

Í gær kvöddum við Önnu Birnu Jensdóttur, sem hefur nú látið af störfum hjá Sóltúni eftir farsælan og áhrifamikinn starfsferil.

Anna Birna gegndi starfi framkvæmdastjóra Öldungs hf. og framkvæmdastjóra hjúkrunar hjá Sóltúni í rúm 20 ár, allt frá stofnun Sóltúns hjúkrunarheimilis árið 2002. Árið 2022 tók hún síðan við sem stjórnarformaður Sóltúns Heilbrigðisþjónustu.

Anna Birna hefur verið ein af áhrifamestu forystukonum landsins á sviði öldrunarþjónustu. Þegar ríkið bauð út byggingu og rekstur hjúkrunarheimilis í Reykjavík var það framtíðarsýn hennar um fyrirmyndarhjúkrunarheimili sem varð fyrir valinu og lagði grunninn að Sóltúni hjúkrunarheimili. Verkefnið markaði tímamót í íslensku heilbrigðiskerfi, þar sem einkaaðili tók að sér umfangsmikið og mikilvægt samfélagsverkefni á sviði öldrunarþjónustu.

Undir hennar forystu var áhersla lögð á mun meira en hefðbundna hjúkrun og umönnun. Þar skipuðu lykilsess:

• einstaklingsmiðuð þjónusta
• lífsgæði og sjálfsákvörðun íbúa
• fagmennska og öflug gæðastjórnun
• þverfaglegt samstarf
• aukin velferð og betra daglegt líf þeirra sem búa á hjúkrunarheimili

Með þessum gildum að leiðarljósi varð Sóltún leiðandi á sviði einstaklingsmiðaðrar öldrunarþjónustu, faglegs starfs og gæðastjórnunar.

Það er vandfundinn meiri kvenskörungur en Anna Birna. Hún hefur verið sterkur leiðtogi, ómetanlegur samstarfsmaður og fyrirmynd fjölmargra. Áhrif hennar og arfleifð munu lifa áfram í starfi Sóltúns og í þeim gildum sem hún hefur hjálpað til við að móta og festa í sessi.

Kæra Anna Birna, við þökkum þér innilega fyrir farsælt samstarf, óeigingjarnt framlag og ómetanleg störf í þágu íbúa, aðstandenda og starfsfólks. Við óskum þér velfarnaðar í næsta kafla lífsins og þökkum þér fyrir allt sem þú hefur lagt af mörkum til Sóltúns.

Takk fyrir okkur, kæra Anna Birna💛

Í dag var gulur dagur á starfsstöðvum Sóltúns eins og svo víða annars staðar. Gul föt, fánar, blöðrur og matur, allt til...
10/09/2026

Í dag var gulur dagur á starfsstöðvum Sóltúns eins og svo víða annars staðar. Gul föt, fánar, blöðrur og matur, allt til að minna á mikilvægi geðheilbrigðis og sjálfsvígsforvarna💛

Er allt í gulu?

Ef þér finnst lífið stundum ekki þess virði að lifa því, leitaðu þá hjálpar.
Ef þú hefur áhyggjur af ástvini/ vini/ vinnufélaga ræddu það við viðkomandi.
Það hjálpar að deila líðan sinni með öðrum.

Hjálparsími Rauða krossins: 1717
Upplýsingamiðstöð Heilsuveru: 1700
Píeta síminn: 552 2218
Neyðarsíminn: 112

Sumarið er alltaf skemmtilegur tími hjá okkur í Sóltúni þegar sumarstarfsfólkið kemur inn fullt af krafti og jákvæðni. E...
01/09/2026

Sumarið er alltaf skemmtilegur tími hjá okkur í Sóltúni þegar sumarstarfsfólkið kemur inn fullt af krafti og jákvæðni. Enn og aftur vorum við einstaklega heppin með sumarstarfsfólk sem sinnti störfum sínum með hlýju og gleði. Flestöll eru þau nú sest aftur á skólabekk og við óskum þeim góðs gengis í næstu verkefnum og þökkum þeim kærlega fyrir sumarið!!❤️👏❤️👏❤️👏❤️

Address

Sóltúni 2
Reykjavík
105

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sóltún Reykjavík posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Sóltún Reykjavík:

Shortcuts

Share