08/09/2026
Ég fékk skilaboð um daginn frá einni sem er nýflutt inn í Móa Heima.
Hún sagði mér að verkefnin væru strax farin að ýta við henni — hjálpa henni að staldra við og njóta lífsins, jafnvel þegar dagarnir eru fullir af allskonar.
Og að uppáhaldið hennar hingað til væri Fegurðarsafnið, sem hún hefði iðkað í göngutúrum með syni sínum.
Þetta gladdi mig svo mikið.
Því Móar Heima voru aldrei hugsaðir sem enn eitt verkefnið sem þarf að finna tíma fyrir.
Þú þarft ekki að mæta á ákveðnum tíma.
Ekki klára ákveðið prógramm.
Þú getur hlustað á möntru í bílnum.
Safnað í fegurðarsafnið í göngutúr.
Hlustað á nidru þegar þú ert komin upp í rúm.
Sest með kakóbolla á hægum sunnudagsmorgni.
Tekið tíu mínútna hugleiðslu þegar það er það eina sem kemst fyrir í deginum.
Móar Heima eru ekki bara iðkun á netinu heldur iðkun sem fær að rata inn í lífið.
Ef þig langar að skoða þig um í Móum Heima geturðu kíkt inn hér.
www.heima.moarstudio.is
Áskriftin er 8.900 kr. á mánuði og þú getur sagt henni upp hvenær sem er.
❤️
Lára