Birta Heilsa

Directions Website Contact the business

Birta Heilsa Heilsunudd, ráðgjöf og hópatímar

Ég heiti Kristín Berta Sigurðardóttir og er eigandi Birtu - Heilsu. Ég býð upp á hópatíma, heilsunudd, heilsuráðgjöf og heilsutengda fyrirlestra fyrir fyrirtæki.

Ég er útskrifaður heilsunuddari frá heilbrigðisskóla FÁ.

Ég legg mikla áherslu á fagleg vinnubrögð og vinn heildrænt með nuddþegum mínum að lausn þeirra mála.

Nóvember og aðventan🌲💚Nú er ég aldeilis búin að bæta við í yoga nidrað í nóv og desember - bætti inn nokkrum mánudögum l...
19/10/2026

Nóvember og aðventan🌲💚

Nú er ég aldeilis búin að bæta við í yoga nidrað í nóv og desember - bætti inn nokkrum mánudögum líka. Nú fer að líða að jólaösinni og mikilvægt að gefa sér tíma til að slaka og hlaða batteríið. Frábært að sjá hvað var einmitt góð mæting í desember í fyrra💚

Eftirfarandi tímar í boði, allir tímar frá kl. 18:00-19:15.
6. nóvember (föstud)
16. nóvember (mánud)
23. nóvember (mánud)
4. desember (föstud)
7. desember (mánud)
14. desember (mánud)

Einnig er opið fyrir skráningu bæði á ,,Teygjur, triggerpunkta og yoga nidra” sem hefst 4. nóvember og á ,,Hádegisteygjur” sem hefst þann 3. nóvember. Ég ætla að halda afsláttarverði áfram á því fram að jólum - 22.000 kr. fyrir 8 skipti (2.750 kr skiptið) Gjöf en ekki gjald!🥳

Ath! alltaf hægt að fá kvittun bæði fyrir nudd, námskeiðin og yoga nidra tímana til að nýta upp íþróttastyrki.

Hlakka til að sjá ykkur,
Ykkar KB💚

17/10/2026

Brjóstakrabbamein og hvað svo?🩷 Örfá sæti laus!

🩷Ókeypis vinnustofa 24. október frá kl 11:00-14:00

🩷Fyrir ALLAR konur sem hafa fengið brjóstakrabbamein

Farið verður yfir:

🩷Mikilvægi þess að vefjalosa og vinna með bandvef eftir svona áföll

🩷Öll mín helstu og bestu bjargráð

🩷Öndun til þess að hjálpa taugakerfinu

🩷Endað á dásamlegu yoga nidra (leiddri djúpslökun)

Næla sér í pláss:

https://book.sinna.is/birtaheilsa/scheduled/services/170830

08/10/2026

Frábær pistill hjá elsku Kristni um armbeygjur. Mæli með að horfa! 💪💙

05/10/2026

Tilfinningar og triggerar í bleikum október🩷

Full ástæða til að pósts þessu masi aftur frá því í fyrra 🩷

FRÍ vinnustofa í bleikum október hjá Birtu Heilsu fyrir konur sem greinst hafa með brjóstakrabbamein🩷Bleikur október fer...
03/10/2026

FRÍ vinnustofa í bleikum október hjá Birtu Heilsu fyrir konur sem greinst hafa með brjóstakrabbamein🩷

Bleikur október fer vel af stað hjá mér🩷🙏

Í gær fékk ég niðurstöðu úr brjóstamyndatöku sem ég fór í fyrir viku síðan: ,,Allt lítur eðlilega út”. Ég verð alltaf hálf meyr á þessum tíma og líka svo þakklát, fyrir lífið mitt, fólkið mitt og að fá að gera það sem ég elska mest – að hlúa að fólki og vera til staðar fyrir þau sem á þurfa að halda.🩷

Þess vegna langar mig að gefa til baka og býð upp á FRÍA 3 klst. vinnustofu fyrir konur sem greinst hafa með brjóstakrabbamein þann 24. október næstkomandi frá kl. 11:00-14:00. Þar ætla ég að fara yfir þau verkfæri sem hafa reynst mér best á minni vegferð og eiga stóran þátt í að ég er komin á þann stað sem ég er á í dag, líkamlega og andlega.
Í lofa notalegri samveru, gleði og húmor. Fræðslu, öndun og yoga nidra🩷

Takmörkuð sæti í boði elsku brjóstakonur, svo um að gera að skrá sig sem allra fyrst:

https://book.sinna.is/birtaheilsa/scheduled/services/170830

29/09/2026

Af hverju pakka ég öllum vel inn á bekknum?💙

Viljið þið vera memm?💙Fyrir ykkur sem viljið sjá og heyra meira frá mér, þá er ég með lokaða grúbbu Facebook sem heitir:...
26/09/2026

Viljið þið vera memm?💙

Fyrir ykkur sem viljið sjá og heyra meira frá mér, þá er ég með lokaða grúbbu Facebook sem heitir: Birta Heilsa samfélagið. Mæli með að finna og bæta ykkur í þann dásamlega hóp💙🙏🏻🫶

Address

Borgartún 28, 2. Hæð
Reykjavík
105

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Birta Heilsa posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Birta Heilsa:

Shortcuts

Share