01/10/2026
VERKVIST hefur ákveðið að taka þátt í verkefninu ,,Endurhæfum Reykjalund" með 250 þúsund króna framlagi.
Okkur er það mikilvægt að byggingar séu heilsusamlegar og hugað sé að innivist og vellíðan þeirra sem í þeim dvelja.
Þess vegna segjum við ,,Byggingar fyrir fólk”.
Gamlar byggingar sem þarfnast viðhalds eins og á Reykjalundi geta sannarlega gengið í endurnýjun lífdaga ef rétt er staðið að endurbótum og viðhaldi þeirra. Af því höfum við reynslu hjá VERKVIST og segjum:
Endurhæfum Reykjalund svo hann nái aftur fyrri reisn sem ein mikilvægasta og besta endurhæfingarstofnun landsins.
Við hvetjum önnur þekkingarfyrirtæki í byggingariðnaði með ástríðu fyrir vönduðum byggingum til að styðja einnig við þetta mikilvæga verkefni. Hollvinasamtök Reykjalundar
https://www.facebook.com/Hollvinasamtokreykjalundar.is
Reykjalundur endurhæfingarmiðstöð SÍBS, 270 Mosfellsbær, sími 585-2000