Spoex, samtök psoriasis- og exemsjúklinga

Spoex, samtök psoriasis- og exemsjúklinga Spoex var stofnað 1972 og starfrækir göngudeild fyrir fólk með húðsjúkdóma í Bolholti 6. Spoex eru félagasamtök og standa meðal annars að fræðslu.

SPOEX er líknarfélag og var stofnað þann 15. nóvember 1972. Það starfrækir í dag skrifstofu og göngudeild fyrir fólk með húðsjúkdóma í eigin húsnæði að Bolholti 6 í Reykjavik. Á göngudeildinni, sem starfar undir eftitliti sérfræðings í húðsjúkdómum, er boðið upp á UVB ljósameðferð samkvæmt tilvísun frá húðsjúkdómalæknum. 2 skápar, 1 handa- og fótaljós og 3 ljósagreiður eru á göngudeildinni. Hlutve

rk félagasamtakanna er að standa vörð um hagsmuna tengsl félagsmanna, standa að reglubundinni fræðslu og miðla málefnum til félagsmanna. Félagsmenn Spoex eru um 1.200. Yfirgnæfandi meirihluti þeirra, eru psoriasissjúklingar. Nokkrir félagsmenn eru velunnarar og styrktarfélagar. Markmið Spoex er fyrst og fremst að gæta réttar sjúklinganna og stuðla að betra og ríkara lífi þeirra með fræðslustarfsemi og kynningu á sjúkdómunum. Stjórn félagsins skipa 7 manns, þar af eru 2 varamenn og er öll vinna stjórnar unnin í sjálfboðavinnu. Jafnframt hafa margir félagsmenn og velunnarar vítt og breitt um landið lagt félaginu lið í gegnum tíðina. Hjá félaginu starfa þrír sjúkraliðar og einn skrifstofustjóri, með aðsetur í Bolholti.

Þorsteinn Þorsteinsson skrifstofustjóri
Eygló Héðinsdóttir sjúkraliði
Steinunn Oddsdóttir sjúkraliði

Á landsbyggðinni eru 16 SPOEX deildir: Á Akureyri, Blönduósi, Borgarnesi, Egilsstöðum, Patreksfirði, Húsavík, Höfn, Ísafirði, Keflavík, Sauðárkróki, Selfossi, Seyðisfirði, Siglufirði, Stykkishólmi, Vestmannaeyjum og Vík í Mýrdal.

Sumarlokun í SPOEX🌞
22/06/2026

Sumarlokun í SPOEX🌞

https://www.visir.is/g/20262896099d/hud-laeknir-bregst-vid-brunkutiskunni
13/06/2026

https://www.visir.is/g/20262896099d/hud-laeknir-bregst-vid-brunkutiskunni

Elísabet Reykdal, húð- og kynsjúkdómalæknir, segist gera skjólstæðinga sína hissa þegar hún útskýrir hvernig eigi að bera á sig sólarvörn. Mikilvægt sé að bera á sig sólarvörn á Íslandi yfir sumarmánuðina, jafnvel þó skýjað sé. Þá upplýsir Elísabet líka um besta...

SPOEX er mætt til að fagna 65 ára afmæli ÖBÍ réttindasamtaka kl. 16:30–19:00! 🥳Hlökkum til að sjá ykkur 🫶🏻
05/05/2026

SPOEX er mætt til að fagna 65 ára afmæli ÖBÍ réttindasamtaka kl. 16:30–19:00! 🥳

Hlökkum til að sjá ykkur 🫶🏻

05/05/2026

Það er lokað í SPOEX Reykjavík í dag þriðjudaginn 5. maí.

SPOEX tekur þátt í að fagna 65 ára afmæli ÖBÍ réttindasamtaka kl. 16:30–19:00.

Aðildarfélög ÖBÍ verða í forgrunni en félög verða á staðnum og kynna starfsemi sína með fjölbreyttum hætti!

Tónlistaratriði, léttar veitingar og góð stemning í boði. Komum saman og fögnum!

Hlökkum til að sjá ykkur 🫶🏻

10/04/2026

Við þurfum því miður að hafa lokað í dag vegna rafmagnsleysis. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Góða helgi 🫶🏻

Gleðilega páska 🐥
01/04/2026

Gleðilega páska 🐥

Address

Bolholt 6
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 10:00 - 17:00
Tuesday 15:00 - 18:00
Wednesday 10:00 - 17:00
Thursday 15:00 - 18:00
Friday 10:00 - 17:00

Telephone

+3545889620

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Spoex, samtök psoriasis- og exemsjúklinga posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Spoex, samtök psoriasis- og exemsjúklinga:

Share