07/10/2026
VIÐ ERUM AÐ LEITA AÐ NÝJUM LIÐSFÉLAGA
Við leitum að öflugum og þjónustulunduðum einstaklingi til að bætast í hópinn okkar hjá Ison.
Starfið er fjölbreytt þjónustustarf þar sem þú ert í daglegum samskiptum við viðskiptavini okkar, tekur á móti pöntunum og fyrirspurnum og sinnir sýningarrými Ison.
Helstu verkefni:
• Þjónusta við viðskiptavini í sýningarrými
• Símsvörun og tölvupóstsamskipti
• Móttaka og skráning pantana
• Samskipti og samvinna við l***r
• Ráðgjöf og upplýsingagjöf um vörur
• Almenn þjónusta og tilfallandi verkefni
Við leitum að einstaklingi sem:
• er fagmenntaður í hársnyrtiiðn
• hefur ríka þjónustulund og góða samskiptahæfni
• er tölvulæs og öruggur í almennri tölvuvinnu
• er skipulagður, nákvæmur og sjálfstæður
• á auðvelt með að halda utan um mörg verkefni í einu
• er jákvæður og góður liðsmaður
Það er kostur ef þú þekkir vörumerki og vörur Ison.
Um er að ræða viðveru virka daga frá kl. 9:00–16:00 hjá Ison í Skútuvogi 11A.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Áhugasamir sendi ferilskrá og stutta kynningu á [email protected]