Sóltún Heima

Directions Website Contact the business

Sóltún Heima Sóltún Heima býður upp á alhliða heimaþjónustu fyrir þau sem á þurfa að halda vegna heilsubrests.

Alþjóðlegi handþvottadagurinn er í dag!Hreinar hendur eru ein einfaldasta og öflugasta sýkingavörnin nú þegar flensan er...
15/10/2026

Alþjóðlegi handþvottadagurinn er í dag!

Hreinar hendur eru ein einfaldasta og öflugasta sýkingavörnin nú þegar flensan er handan við hornið.

Hvernig þvoum við hendurnar almennilega?

• Skola hendur með volgu vatni til að fjarlægja sýnileg óhreinindi.
• Fá sér smá sápu.
• Nudda höndunum saman í um 20 sekúndur og muna að þvo vel svæðin milli fingra, við neglur, lófa og handarbak.
• Skola hendurnar vel.
• Þurrka vel, sérstaklega á milli fingra.

Einfalt en áhrifaríkt!

💛

Vika einmanaleikans hefst í dag. Vika einmanaleikans er vitundarvakning Kvenfélagasambands Íslands gegn einsemd og einma...
05/10/2026

Vika einmanaleikans hefst í dag. Vika einmanaleikans er vitundarvakning Kvenfélagasambands Íslands gegn einsemd og einmanaleika sem við finnum öll fyrir einhvern tímann á lífsleiðinni. Hægt er finna ýmsar upplýsingar á vefsíðu Viku einmanaleikans og viðburðardagskrá fyrir vikuna. Einnig er skemmtilegt bingóspjald á vefsíðunni sem er með hugmyndir af hlutum sem er hægt að gera til að rjúfa einsemdina💛

Verkefninu er ætlað að opna á umræðu um einmanaleika í samfélaginu, upplýsa almenning um orsakir og afleiðingar, hvetja til aðgerða og efla samtakamátt í þjóðfélaginu gegn einmanaleika.

Í dag fögnum við fólkinu sem hefur mótað samfélagið okkar því í dag er Alþjóðadagur aldraðra💛Í tilefni dagsins hvetur að...
01/10/2026

Í dag fögnum við fólkinu sem hefur mótað samfélagið okkar því í dag er Alþjóðadagur aldraðra💛
Í tilefni dagsins hvetur aðalritari Sameinuðu þjóðanna til samstöðu milli kynslóða og til þess að langt líf sé líka gott líf, með valfrelsi, öryggi og reisn.

Fólk lifir í dag lengur en nokkru sinni fyrr og það kallar á fjölbreytta þjónustu sem mætir fólki þar sem það er. Það er einmitt það sem við vinnum að alla daga hjá Sóltúni, að veita eldra fólki þá þjónustu sem það þarf til að lifa góðu lífi💛

www.soltun.is

Það var verndarbogi yfir Sólvangi í dag á meðan þetta hressilega haustveður gekk yfir🌈🍂🌧️
22/09/2026

Það var verndarbogi yfir Sólvangi í dag á meðan þetta hressilega haustveður gekk yfir🌈🍂🌧️

Sóltún Heimahreyfing notar æfingakerfið DigiRehab sem hentar sérstaklega vel þeim sem hafa ekki þrek til þess að taka þá...
22/09/2026

Sóltún Heimahreyfing notar æfingakerfið DigiRehab sem hentar sérstaklega vel þeim sem hafa ekki þrek til þess að taka þátt í almennri líkamsrækt, en vilja ná aftur fyrri orku og líkamlegum styrk.

Hafðu samband í síma 563 1400
www.soltun.is/heimathjonusta

15/09/2026

Laus störf Sóltúni heilbrigðisþjónustu

Í dag var gulur dagur á starfsstöðvum Sóltúns eins og svo víða annars staðar. Gul föt, fánar, blöðrur og matur, allt til...
10/09/2026

Í dag var gulur dagur á starfsstöðvum Sóltúns eins og svo víða annars staðar. Gul föt, fánar, blöðrur og matur, allt til að minna á mikilvægi geðheilbrigðis og sjálfsvígsforvarna💛

Er allt í gulu?

Ef þér finnst lífið stundum ekki þess virði að lifa því, leitaðu þá hjálpar.
Ef þú hefur áhyggjur af ástvini/ vini/ vinnufélaga ræddu það við viðkomandi.
Það hjálpar að deila líðan sinni með öðrum.

Hjálparsími Rauða krossins: 1717
Upplýsingamiðstöð Heilsuveru: 1700
Píeta síminn: 552 2218
Neyðarsíminn: 112

Gömul en góð grein eftir Dr. Ólöfu Guðnýju Geirsdóttur um fyrirbyggjandi aðgerðir gegn vöðvarýrnun aldraðra.Sóltún Heima...
01/09/2026

Gömul en góð grein eftir Dr. Ólöfu Guðnýju Geirsdóttur um fyrirbyggjandi aðgerðir gegn vöðvarýrnun aldraðra.

Sóltún Heimahreyfing getur hjálpað. Við komum til þín.
www.soltun.is/heimathjonusta

Háskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám á grunn og framhaldsstigi. Lögð er áhersla á fræðilega nálgun og rannsóknatengt nám með góð tengsl við atvinnulíf og nýsköpun

Gunnar Sigurðsson hefur tekið við sem stjórnarformaður Sóltúns heilbrigðisþjónustu. Hann tekur við af Önnu Birnu Jensdót...
28/08/2026

Gunnar Sigurðsson hefur tekið við sem stjórnarformaður Sóltúns heilbrigðisþjónustu. Hann tekur við af Önnu Birnu Jensdóttur, fyrrum forstjóra, stofnanda og stjórnarformanni. Anna Birna lætur samhliða breytingunum af stjórnarsetu og Sigríður Gunnarsdóttir tekur sæti í stjórn félagsins.
Anna Birna hefur gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu SóItúns frá stofnun. Hún var forstjóri Öldungs hf. frá 2001 til 2022 og hefur verið stjórnarformaður undanfarin fjögur ár. Undir hennar forystu hefur SóItún verið leiðandi í þróun einstaklingsmiðaðrar öldrunarþjónustu, gæðastjórnunar og faglegs starfs á hjúkrunarheimilum.
,,Það hafa verið forréttindi og gefandi að vinna að uppbyggingu öldrunarþjónustunnar með frábæru samstarfsfólki í Sóltúnsfélögunum. Framtíðin er björt með öflugu stjórnendateymi og frábæru starfsfólki sem tekið hefur við kyndlinum með metnaði, fagmennsku og umhyggju að leiðarljósi." -Anna Birna Jensdóttir.
Gunnar Sigurðsson gekk til liðs við stjórn SóItúns árið 2025 og tekur nú við formennsku stjórnar. Hann býr yfir víðtækri reynslu af stjórnun, fjármálum, heilbrigðisþjónustu og uppbyggingu fyrirtækja, bæði á Íslandi og í Bretlandi.
Sigríður Gunnarsdóttir tekur sæti í stjórn SóItúns heilbrigðisþjónustu en hún hefur víðtæka reynslu af stjórnun í heilbrigðisþjónustu, kennslu og rannsóknum.
Á þessum tímamótum er einnig haft eftir Höllu Thoroddsen, forstjóra SóItúns heilbrigðisþjónustu:
,,Anna Birna hefur undanfarin 25 ár haft mótandi áhrif á Sóltún með fagmennsku, framsýni og metnaði fyrir bættri öldrunarþjónustu að leiðarljósi. Við þökkum henni fyrir einstakt framlag sitt til fyrirtækisins og til öldrunarþjónustu á Íslandi. Á sama tíma er mikill fengur fyrir Sóltún að fá Gunnar Sigurðsson í nýtt hlutverk innan stjórnarinnar og að fá Sigríði Gunnarsdóttur inn í stjórn félagsins. Gunnar hefur þegar kynnst starfsemi Sóltúns vel og býr yfir mikilvægri reynslu. Sigríður kemur þá inn í stjórnina með mikilvæga þekkingu og reynslu úr heilbrigðiskerfinu, á sviði stjórnunar, hjúkrunar, rannsókna og fræðslu. Við bjóðum þau hjartanlega velkomin til starfa og hlökkum til áframhaldandi uppbyggingar og þróunar félagsins undir nýrri forystu stjórnar."

Gunnar Sigurðsson hefur tekið við sem stjórnarformaður Sóltúns heilbrigðisþjónustu. Hann tekur við af Önnu Birnu Jensdóttur, fyrrum forstjóra, stofnanda og stjórnarformanni. Anna Birna lætur samhliða breytingunum af stjórnarsetu og Sigríður Gunnarsdóttir tekur sæti í stjórn f...

11/08/2026

Sóltún Heima býður upp á alhliða heimaþjónustu fyrir þau sem á þurfa að halda vegna heilsubrests.

Address

Sólvangsvegi 2
Reykjavík
220

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sóltún Heima posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Sóltún Heima:

Shortcuts

Share