12/06/2026
Njóttu augnabliksins.
Það sem þú elskar gæti verið farið á morgun. Forðastu að dæma veruleika annarra sem þú ekki skilur - hver segir að þínar skoðanir og veruleiki séu það rétta? Tileinkum okkur gagnkvæma virðingu í stað hroka. Ég skora á þig að gera góðverk eins oft og þú getur næstu daga og alla daga. Þú getur haft raunveruleg áhrif á líf annarrar manneskju með orðum þínum og gjörðum. Leggðu rækt við andlega og líkamlega heilsu þína og stefndu að því að vera besta útgáfan af sjálfri/sjálfum þér. Heil heilsa er dýrmæt, sem við tökum því miður of oft sem sjálfsögðum hlut.
Þú getur hugsanlega gert þennan heim örlítið betri en hann er með uppbyggjandi orðum og gjörðum í garð ástvina þinna og náungans - fólk þarf á þér að halda.
(AM)