Madison - Ilmhús

Madison - Ilmhús Ilmvötn, snyrtivörur og snyrtistofa. Iceland’s first niché fragrance store. Ekkert er til sparað í hráefni eða umbúðum og fær handverkið að njóta sín.

Madison – Ilmhús er sérverslun með gæða-ilmvötn frá heimsþekktum framleiðendum sem eiga það sameiginlegt að telja að ilmvatnsgerð sé listgrein og að ilmvatnsmeistarinn sé listamaður sem á að fá að tjá sig.
Á ensku eru svona ilmvötn kölluð “niche perfumes” eða “artistic perfumes”, hér eru kröfur fjöldaframleiðslu og markaðssetningar ekki látin stýra framleiðslunni heldur eru hin ýmsu hughrif framk

ölluð með ilmum. Mörg þessara ilmvatna framleidd í litlu magni sökum sveiflna í framboði á náttúrlegu hráefni sem nauðsynlegt er til framleiðslunnar.
Öll merkin sem verða til sölu í Madison Ilmhúsi hafa sína sögu og hefðir, sum eru gömul og íhaldsöm önnur eru ný og tilraunagjörn en öll eiga það sameiginlegt að vera framleidd af ástríðu þar sem engin afsláttur er gefin af gæðum eða þeirri trú að ilmvatnsgerð sé listgrein. Madison - Ilmhús mun hafa vörur frá fjölmörgum framleiðendum í boði frá öllum heimshornum , aðeins það besta verður í boði og ofangreindri hugmyndafræði alltaf fylgt. Langflest gæða-ilmvötn eru hönnuð til þess að bæði kynin noti sama ilmvatnið en í einverjum tilfellum er sérstaklega hannað fyrir hvort kyn. Verslunin er hönnuð svo að viðskiptavinurinn geti prófað og skoðað úrvalið í rólegheitunum og rætt málið við sérþjálfað starfsfólkið.
Þó verslunin selji gæða- ilmvötn er ekki þar með sagt að vörurnar séu alltaf miklu dýrari en það sem er fjöldaframleitt því í versluninni verður eitthvað fyrir alla, á allskonar verðum. Auk ilmvatna verður gott úrval af snyrtivörum, kremum og húðvörum og öðrum slíkum vörum sem framleiddar eru af sömu hugmyndafræðinni og ilmvötnin. Einnig verður snyrtistofa í versluninni þar sem í boði verða ýmiskonar meðferðir. Framleiðendur þessara vara taka sjálfa sig alvarlega og gæta að því að vörur þeirra séu aðeins seldar í sérstökum verslunum sem skilja og framfylgja sömu hugmyndafræði og þeir nota við framleiðsluna, því er gaman að segja frá því að nær öll merkin sem verða í boði í Madison – Ilmhúsi hafa aldrei verið til sölu á Íslandi áður.
Á síðustu árum og jafnvel áratugum hefur framleiðsla á ilmvatni stýrst af markaðssetningu, megnið af þeirri fjárfestingu sem fer í að setja nýjan ilm á markað fer í auglýsingar eða greiðslur til stjörnu sem lánar nafn sitt til að selja ilminn. Þróunin hefur verið að búa til ilmi sem falla sem flestum í geð oft eru vörurnar seldar í umhverfi þar sem áreitið er mikið og því er ilmurinn hannaður þannig að hann á að grípa kaupandann strax við fyrstu prufu. Gæða-ilmvatnið þróast aftur á móti yfir daginn og gefur frá sér margar ilmnótur og blæbrigði sem eru mjög margslungin og áhugaverð. Samkeppnin á þessum fjöldamarkaði er mikil og þrýstingur á verð gífurlegur, því eru eiginleg gæði oft látin sitja á hakanum og lítil sem engin áhætta tekin í að kynna vörur sem falla ekki í kramið hjá fjöldanum. Vegna þessa verðþrýstings hafa mörg þekkt merki breytt sínum vörum svo lítið beri á þannig að ódýrara sé að framleiða þau og því eru ilmvötn sem voru einu sinni byltingarkennd orðin mun fábrotnari og einfaldari í dag. Ilmvatnið sem slíkt er hætt að heilla og ögra og er í staðinn orðið hversdagslegt og venjulegt og er selt í krafti þekkts tískuvörumerkis eða í nafni stjörnunnar í auglýsingum. Þetta er algerlega andstætt hugmyndafræði þeirra sem hanna og selja gæða-ilmvötn þar sem ilmvatnið talar fyrir sig sjálft og auglýsingar nær aldrei notaðar.

Address

Aðalstræti 9
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 12:00 - 18:00
Tuesday 12:00 - 18:00
Wednesday 12:00 - 18:00
Thursday 12:00 - 18:00
Friday 12:00 - 18:00
Saturday 12:00 - 17:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Madison - Ilmhús posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Hvað er Madison Ilmhús?

Madison – Ilmhús er sérverslun með gæða-ilmvötn frá heimsþekktum framleiðendum sem eiga það sameiginlegt að telja að ilmvatnsgerð sé listgrein og að ilmvatnsmeistarinn sé listamaður sem á að fá að tjá sig. Á ensku eru svona ilmvötn kölluð “niche perfumes” eða “artistic perfumes”, hér eru kröfur fjöldaframleiðslu og markaðssetningar ekki látin stýra framleiðslunni heldur eru hin ýmsu hughrif framkölluð með ilmum. Ekkert er til sparað í hráefni eða umbúðum og fær handverkið að njóta sín. Mörg þessara ilmvatna framleidd í litlu magni sökum sveiflna í framboði á náttúrlegu hráefni sem nauðsynlegt er til framleiðslunnar. Öll merkin sem verða til sölu í Madison Ilmhúsi hafa sína sögu og hefðir, sum eru gömul og íhaldsöm önnur eru ný og tilraunagjörn en öll eiga það sameiginlegt að vera framleidd af ástríðu þar sem engin afsláttur er gefin af gæðum eða þeirri trú að ilmvatnsgerð sé listgrein. Madison - Ilmhús mun hafa vörur frá fjölmörgum framleiðendum í boði frá öllum heimshornum , aðeins það besta verður í boði og ofangreindri hugmyndafræði alltaf fylgt. Langflest gæða-ilmvötn eru hönnuð til þess að bæði kynin noti sama ilmvatnið en í einverjum tilfellum er sérstaklega hannað fyrir hvort kyn. Verslunin er hönnuð svo að viðskiptavinurinn geti prófað og skoðað úrvalið í rólegheitunum og rætt málið við sérþjálfað starfsfólkið. Þó verslunin selji gæða- ilmvötn er ekki þar með sagt að vörurnar séu alltaf miklu dýrari en það sem er fjöldaframleitt því í versluninni verður eitthvað fyrir alla, á allskonar verðum. Auk ilmvatna verður gott úrval af snyrtivörum, kremum og húðvörum og öðrum slíkum vörum sem framleiddar eru af sömu hugmyndafræðinni og ilmvötnin. Einnig verður snyrtistofa í versluninni þar sem í boði verða ýmiskonar meðferðir. Framleiðendur þessara vara taka sjálfa sig alvarlega og gæta að því að vörur þeirra séu aðeins seldar í sérstökum verslunum sem skilja og framfylgja sömu hugmyndafræði og þeir nota við framleiðsluna, því er gaman að segja frá því að nær öll merkin sem verða í boði í Madison – Ilmhúsi hafa aldrei verið til sölu á Íslandi áður. Á síðustu árum og jafnvel áratugum hefur framleiðsla á ilmvatni stýrst af markaðssetningu, megnið af þeirri fjárfestingu sem fer í að setja nýjan ilm á markað fer í auglýsingar eða greiðslur til stjörnu sem lánar nafn sitt til að selja ilminn. Þróunin hefur verið að búa til ilmi sem falla sem flestum í geð oft eru vörurnar seldar í umhverfi þar sem áreitið er mikið og því er ilmurinn hannaður þannig að hann á að grípa kaupandann strax við fyrstu prufu. Gæða-ilmvatnið þróast aftur á móti yfir daginn og gefur frá sér margar ilmnótur og blæbrigði sem eru mjög margslungin og áhugaverð. Samkeppnin á þessum fjöldamarkaði er mikil og þrýstingur á verð gífurlegur, því eru eiginleg gæði oft látin sitja á hakanum og lítil sem engin áhætta tekin í að kynna vörur sem falla ekki í kramið hjá fjöldanum. Vegna þessa verðþrýstings hafa mörg þekkt merki breytt sínum vörum svo lítið beri á þannig að ódýrara sé að framleiða þau og því eru ilmvötn sem voru einu sinni byltingarkennd orðin mun fábrotnari og einfaldari í dag. Ilmvatnið sem slíkt er hætt að heilla og ögra og er í staðinn orðið hversdagslegt og venjulegt og er selt í krafti þekkts tískuvörumerkis eða í nafni stjörnunnar í auglýsingum. Þetta er algerlega andstætt hugmyndafræði þeirra sem hanna og selja gæða-ilmvötn þar sem ilmvatnið talar fyrir sig sjálft og auglýsingar nær aldrei notaðar.