26/08/2026
📢 **Ný komugjöld í sjúkraþjálfun frá 1. september**
Frá og með 1. september taka gildi ný komugjöld vegna þjónustu sjúkraþjálfara, samkvæmt ákvörðun stjórnvalda. Gjöldin eru því ekki ákvörðuð af Elju sjúkraþjálfun eða einstökum sjúkraþjálfurum.
Samkvæmt þeim upplýsingum sem liggja fyrir verða gjöldin:
• **Almennt komugjald: 1.500 kr.**
• **Ellilífeyrisþegar: 1.000 kr.**
• **Örorkulífeyrisþegar og einstaklingar á endurhæfingarlífeyri: 500 kr.**
Komugjaldið bætist við þá upphæð sem skjólstæðingur greiðir fyrir meðferð, þó heildargreiðsla geti aldrei orðið hærri en heildarverð meðferðar samkvæmt gjaldskrá.
Við hjá Elju sjúkraþjálfun viljum upplýsa skjólstæðinga okkar um þessa breytingu. Enn er beðið frekari skýringa frá stjórnvöldum um ákveðin atriði varðandi framkvæmdina og munum við miðla frekari upplýsingum eftir því sem þær berast.