Félag sjúkraþjálfara

Félag sjúkraþjálfara Félag sjúkraþjálfara (FS) er fag- og stéttarfélag sjúkraþjálfara á Íslandi Að efla samvinnu og samheldni sjúkraþjálfara innan FS og gæta hagsmuna þeirra.
2.

Félag sjúkraþjálfara (FS) á rætur sínar að rekja til ársins 1940, þegar fyrsta félag sjúkraþjálfara (þá nuddkvenna) var stofnað. Í janúar 2013 sameinuðust Félag íslenskra sjúkraþjálfara, Félag sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara og Stéttarfélag sjúkraþjálfara í eitt sterkt Félag sjúkraþjálfara, sem heldur utan um fagmál og kjaramál sjúkraþjálfara á Íslandi.
1. Að stuðla að aukinni faglegri vitund

sjúkraþjálfara.
3. Að auka gæði sjúkraþjálfunar.
4. Að efla samvinnu við sjúkraþjálfara erlendis og aðrar heilbrigðisstéttir innanlands sem
utan.
5. Að stuðla að bættri menntun sjúkraþjálfara.
6. Að kynna starf sjúkraþjálfara.
7. Að vinna að bættri heilsu landsmanna.

Félagsfólk í fréttum"Hjartaendurhæfing er ekki aðeins hluti af bata eftir veikindi eða aðgerð heldur er hún mikilvæg fjá...
08/09/2026

Félagsfólk í fréttum

"Hjartaendurhæfing er ekki aðeins hluti af bata eftir veikindi eða aðgerð heldur er hún mikilvæg fjárfesting í áframhaldandi heilsu, færni og lífsgæðum"

Hjartaendurhæfing er mikilvæg og er þjóðfélagslega hagkvæm fyrir alla. Fjöldi aðgerða á hjarta eru framkvæmdar á ári hverju auk þess sem margir veikjast en fara ekki í aðgerðir.

Í tilefni af alþjóðlegum degi sjúkraþjálfunar 8.september 2026 "Ef við viljum heilbrigðiskerfi sem stenst álag framtíðar...
08/09/2026

Í tilefni af alþjóðlegum degi sjúkraþjálfunar 8.september 2026
"Ef við viljum heilbrigðiskerfi sem stenst álag framtíðarinnar verðum við að fjárfesta markvisst í þjónustu sem heldur fólki virku, dregur úr sjúkdómsbyrði og bætir lífsgæði."

Á alþjóðlegum degi sjúkraþjálfunar, sem haldinn er 8. september ár hvert, er ástæða til að staldra við og spyrja hvernig heilbrigðiskerfi við viljum byggja upp.

08/09/2026

Í dag er alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfara 💙

Sjúkraþjálfun gegnir lykilhlutverki í að efla heilsu, auka virkni og bæta lífsgæði fólks á öllum æviskeiðum. Hvort sem um er að ræða endurhæfingu eftir meiðsli, forvarnir eða stuðning við að halda líkamanum í sinni bestu hreyfingu.

Til hamingju með daginn sjúkraþjálfarar! 💪

Við erum strax farin að fá veður af því að fólk í viðkvæmri stöðu sjái framá að þurfa að hætta í sjúkraþjálfun vegna nýr...
03/09/2026

Við erum strax farin að fá veður af því að fólk í viðkvæmri stöðu sjái framá að þurfa að hætta í sjúkraþjálfun vegna nýrra komugjalda ríkisins.
Gunnlaugur Már Briem, formaður Félags sjúkraþjálfara, fór í viðtal á Bylgjunni og ræddi málið.

Gunnlaugur Már Briem formaður félags Sjúkraþjálfarafélags Íslands

„Að leggja óheft komugjöld á viðkvæma hópa, án skýrs hámarks, mun skerða aðgengi, auka ójöfnuð og leiða til meiri kostna...
02/09/2026

„Að leggja óheft komugjöld á viðkvæma hópa, án skýrs hámarks, mun skerða aðgengi, auka ójöfnuð og leiða til meiri kostnaðar annars staðar í heilbrigðis- og velferðarkerfinu.“

Formaður Félags sjúkraþjálfara stakk niður penna og skrifaði um ný komugjöld ríkisins á þjónustu sjúkraþjálfara sem tóku gildi í gær. Hann varpar fram þeiri spurningu hvernig við viljum forgangsraða fjármunum í heilbrigðiskerfinu og hver á að bera kostnaðinn.

Umrædd gjaldtaka styrkir fjárhagsstöðu his opinbera en aðeins með því að almenningur greiðir meira fyrir nauðsynlega þjónustu.

Í gær þann 1.september tóku í gildi umfangsmiklar breytingar á greiðsluþátttöku almennings vegna þjónustu sjúkraþjálfara. Breytingarnar fela í sér að kostnaður sjúklinga eykst verulega á sama tíma og greiðsluþátttaka hins opinbera í nauðsynlegri endurhæfingu minnkar.

Ný komugjöld hins opinbera taka gildi í dag, 1. september 2026Frá og með deginum í dag leggst sérstakt komugjald á hverj...
01/09/2026

Ný komugjöld hins opinbera taka gildi í dag, 1. september 2026

Frá og með deginum í dag leggst sérstakt komugjald á hverja komu í sjúkraþjálfun. Gjöldin eru ákveðin af stjórnvöldum og renna ekki til sjúkraþjálfara eða annarra þjónustuveitenda.

Gjöldin eiga við alla þjónustu sjúkraþjálfara sem veitt er á stofum sem og göngudeildarþjónustu stofnana.

Breytingin felur í sér minni greiðsluþátttöku hins opinbera í þjónustunni og aukna hlutdeild sjúklinga í kostnaði.

Viðbótar-komugjald fyrir hverja komu er:
- 1.500 kr. fyrir almenna sjúkratryggða
- 1.000 kr. fyrir ellilífeyrisþega
- 500 kr. fyrir öryrkja
- 0 kr. fyrir börn yngri en 18 ára

Mikilvægt er að þetta komi skýrt fram svo ekki skapist misskilningur um fyrirkomulag þessarar gjaldtöku.

Félagsfólk í fjölmiðlumHalldór Rafn Halldórsson sjúkraþjálfari skrifaði skoðanagrein á Vísi um ný komugjöld í heilbrigði...
26/08/2026

Félagsfólk í fjölmiðlum

Halldór Rafn Halldórsson sjúkraþjálfari skrifaði skoðanagrein á Vísi um ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu sem taka gildi 1. september og þeim áhrifum sem þau munu hafa.

Formaður félags sjúkraþjálfara skrifaði grein á sömu nótum fyrir stuttu síðan og vinnur félagið nú hörðum höndum að því að afla frekari upplýsinga um gjaldtökuna, óska eftir samráði um ákvarðanir sem snerta störf sjúkraþjálfara og benda á ágalla í innleiðingunni.

Þann 1. júlí síðastliðinn tilkynnti heilbrigðisráðuneytið að það muni taka upp sérstakt komugjald þann 1. september fyrir komur til sjúkraþjálfara, iðjuþjálfara og talmeinafræðinga. Komugjaldið verður 1.500 kr. fyrir almenna, 1.000 kr. fyrir aldraða og 500 kr. fyrir öryrkj...

Félagsfólk í fréttumKolbrún Kristínardóttir, yfirsjúkraþjálfari hjá Gló æfingastöð fór í viðtal í Bítinu á Bylgjunni ása...
24/08/2026

Félagsfólk í fréttum

Kolbrún Kristínardóttir, yfirsjúkraþjálfari hjá Gló æfingastöð fór í viðtal í Bítinu á Bylgjunni ásamt móður barn sem nýtir sér þjónustu Gló. Þær ræddu meðal annars um góðgerðarpítsu Domino's.

Kolbrún Kristínardóttir, yfirsjúkraþjálfari hjá Gló æfingastöð og Heiðrún Kristín Axelsdóttir, móðir barn sem nýtir sé þjónustu Gló, ræddu við okkur um góðgerðarpítsu Domino’s.

Við hlökkum til að fagna Alþjóðlegum degi sjúkraþjálfara 8. september
14/08/2026

Við hlökkum til að fagna Alþjóðlegum degi sjúkraþjálfara 8. september

Address

Borgartún 6
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 13:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 12:00
Wednesday 09:00 - 12:00
Thursday 09:00 - 12:00
Friday 09:00 - 12:00

Telephone

+3545955186

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Félag sjúkraþjálfara posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Félag sjúkraþjálfara:

Shortcuts

Share