30/01/2023
Magnesíum Citrate gagnast oft mjög vel við sinadrætti, fótapirring og hægðatregðu sem og að hjálpa fólki að sofa betur vegna tauga- og vöðvaslakandi áhrifa. Getur einnig létt á höfuðverk og tíðaverkjum.
Magnesium Citrate hefur töluvert losandi áhrif í ristli svo best er að byrja á litlum skammti og auka hann smátt og smátt eftir þörfum.
Magnesíum er lífsnauðsynlegt steinefni sem kemur víða við sögu í líkamanum. Það skiptir sköpum fyrir bæði vöðva og taugaslökun. Beinin þurfa nægilegt magn til að myndast og starfa rétt. Magnesíum er einnig nauðsynlegt fyrir hjarta og æðakerfi, alla orkuvinnslu í líkamanum og blóðsykursjafnvægi. Það er samverkandi þáttur í yfir 300 efnahvörfum í líkamanum svo það liggur ljóst fyrir að líkaminn getur ekki án magnesíums verið og því mikilvægt að fá nóg á hverjum degi.
🛒Solaray/KAL fæst í Lyfju, Heilsuhúsinu, Fjarðakaup, Lyf og Heilsu, Heilsuveri, og öðrum völdum apótekum. Solaray fæst einnig í netverslun Lyfju og Heilsuhússins.