02/09/2026
Þegar menntun og fullt starf duga ekki!
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga stóð fyrir könnun á stöðu háskólamenntaðra á húsnæðismarkaði ásamt BHM og fimm öðrum stéttarfélögum. Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands framkvæmdi könnunina.
Niðurstöðurnar vekja athygli og varpa ljósi á þær áskoranir sem hjúkrunarfræðingar og aðrir háskólamenntaðir standa frammi fyrir á húsnæðismarkaði.
Þrjár niðurstöður standa sérstaklega upp úr:
* Um 60% svarenda, 44 ára og yngri, hafa þurft aðstoð fjölskyldu eða annarra til að komast inn á húsnæðismarkað.
* Námslán þrengja fjárhagslegt svigrúm, en 28% þeirra sem greiða bæði af náms- og húsnæðislánum eiga erfitt með að standa undir húsnæðiskostnaði.
* 37% svarenda vinna meira en 100% starf
Meginmarkmið í kjarabaráttu stéttarfélaga háskólamenntaðra hefur lengi verið skýrt: Háskólamenntun á að borga sig. Hún á að skila sér í sanngjörnum launum, góðum lífskjörum og félagslegu öryggi.