24/06/2026
🩷Guðný Pála og dóttir hennar Ísabella hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu 22. ágúst🩷
"Ég greinist með þriðja stigs brjóstakrabbamein í mars og byrja í lyfjameðferð í lok mars. Ef allt gengur vel klára ég lyfjameðferð í byrjun september og fer svo í framhaldi af henni í aðgerð og svo geislameðferð.
Ég hef í gegnum það sem af er lyfjameðferð reynt að setja mér háleit markmið. Mig langar svo að sýna börnunum mínum, og öllum í kringum mig, að alveg sama hverju lífið slengir í fangið á okkur getum við allt sem við ætlum okkur. Við höfum val um það hvernig við kjósum að fara í gegnum lífið og hvaða viðhorf við höfum. Jákvæðni, bjartsýni og örlítið af þrjósku getur nefnilega komið okkur ansi langt.
Ég hef aldrei getað hlaupið. Sem barn var ég með mikinn áreynsluasma og var alltaf síðust í öllum hlaupum og fannst ekkert erfiðara eða meira niðurlægjandi en “beeptest”.
Það er því ansi háleitt markmið að ætla að taka þátt, því 10 kílómetrar er mikið fyrir mig, hvað þá í miðri lyfjameðferð. Ég ætla samt að klára! Þó ég komi í mark rétt áður en því lokar!
Ég valdi að styrkja Ljósið. Það starf sem á sér stað þar er svo ofboðslega mikilvægt og gefandi fyrir okkur sem greinumst með krabbamein og ég er þakklát fyrir þá þekkingu og stuðning sem ég hef fengið þaðan."
Það var æðislegt að fá þessa snillinga í heimsókn í Ljósið! Jákvæði og dugnaður einkennir hana Guðnýju og ættu allir að taka hana til fyrirmyndar. Við fögnum ykkur vel þegar þið hlaupið framhjá okkur 22. ágúst😍🏃🏼♀️
Hægt er að heita á Guðnýju hér: https://www.rmi.is/hlaupastyrkur/hlauparar/21385-gudny-pala
Einnig er hægt að heita á hlaupahópinn þeirra hér: https://www.rmi.is/hlaupastyrkur/hlaupahopar/21389-gudny-og-ljosvakarnir-leyfdu-ljosi-ad-streyma-inn