08/08/2026
Dekurhelgi fyrir dömur í anda ayurveda lífsvísindanna verður haldin í Skálholti 30. október til 1. nóvember.
Þar munum konur koma saman og læra um leiðir ayurveda til betri heilsu um leið og dekrað er og dúllað við hópinn.
Hverri og einni er hjálpað til að finna út sína meðfæddu líkams- og hugargerð (PRAKRITI) og fjallað er um ýmislegt í heilsunni sem margir vilja bæta eins og meltinguna, svefninn, liðverki eða orkuleysi. Ayurveda hefur aðra nálgun á heilsuna en Vestrænar lækningar og geta gagnast vel ein og sér eða sem aukaverkfæri með annarri meðferð.
Við fáum frábært grænmetisfæði sem kokkurinn á Hótel Skálholti útbýr fyrir okkur, gæðum okkur á ýmsu bragðgóðu nasli í anda ayurveda, slökum í jóga nidra, hugleiðum saman og lærum hvernig hægt er að nota öndunaræfingar.
Ekki missa af snemmskráningar-afslættinum, 10.000 kr ef bókað er fyrir 1. september. 😘
Nánari upplýsingar og skráning er á vef Ástar og Friðar,
Í friðsæld og fegurð Skálholts munum við draga okkur í hlé frá hinu daglega amstri og hlaða batteríin fyrir veturinn. Þetta ayurveda dömuhlédrag er mikið dekur og dúll með góðri fræðslu inn á milli um verkfæri ayurveda til að styrkja líkama og huga. Verð fyrir einsmannsherb...