18/05/2026
Við viljum einnig bjóða Anítu hjartanlega velkomna til starfa hjá okkur í Kyrrð heilsusetri.
Aníta leigir meðferðarherbergi hjá okkur og starfar alla virka daga. Hún er vottaður tíðnitæknir og vinnur með Tíðnimeðferð samkvæmt kenningum Paul Schmidt með aðferðum frá Rayonex Biomedical GmbH í Þýskalandi.
Í starfi sínu leggur Aníta áherslu á heildræna nálgun þar sem markmiðið er að styðja við náttúrulega jafnvægisleit líkamans og efla almenna vellíðan með sértækum tíðnum.
Hún vinnur með einstaklingum af nærgætni, fagmennsku og hlýju og leitast við að skapa rólegt og traust umhverfi þar sem hver og einn fær þjónustu sem tekur mið af þeirra þörfum og aðstæðum.
Aníta starfar undir nafninu Langey og hægt er að bóka tíma hjá henni í gegnum Noona - noona.is/langey
Við erum afar ánægðar að fá Anítu til liðs við okkur hjá Kyrrð og hlökkum til samstarfsins